Share.

    21 Kommentare

    1. RaymondBeaumont on

      Mér hefur aldrei liðið jafn mikið eins og ég sé af eldri kynslóð og þegar ég var að nota þetta.

    2. No_Candidate_1727 on

      Ekki datt mér í hug að fólk væri í alvöru að nota þetta. Er þetta sem sagt þess virði að prófa?

    3. GlimGlimFlimFlam on

      Mér finnst þetta algjör snilld! Maður þarf ekki að taka allar vörurnar upp úr kerrunni til að skanna þær og svo tekur enga stund að borga. Maður er á kassa í svona 20 sek og labbar svo út.

      Don’t knock it till you try it

    4. Krónan er með svipað nema þú notar bara snjallsímann þinn ef ég man rétt. Þetta er alveg sniðugt, þægilegt að sleppa við raðir

    5. Ég hef prófað þetta 2-3 sinnum. Ég var aðallega að lenda í að setja vörurnar óvart beint í pokann og gleyma að skanna. Fattaði, tók vöruna aftur upp úr pokanum og skannaði og setti aftur í pokann. Ég hugsa að það sé eitthvað um afföll á vörum þar sem fólk er hreinlega að gleyma sér í þessu. Ekki viljandi að stela heldur bara gleyma. Ofan á þetta þá er maður heldur ekki að raða rétt í pokann. Kælivörur og annað stærra er yfirleitt ekki það fyrsta sem maður kemur að í búðinni, oft eru það brauðvörur eða annað sem þú vilt ekki hafa neðst.

      Ég nota sjálfsafgreiðslukassana nánast alltaf. Mér finnst það fljótlegast og þægilegast. Gleymi ekki að borga fyrir neitt því ég tæmi körfuna á pokasvæðið. Get raðað svo í pokann eftir stærð, þyngd og þess háttar á mínum eigin tíma, ekki vörur frá næsta að byrja að flæða yfir mínar. Nei ég „vinn ekki í búðinni“ eins og sumir benda á sem eru ekki hlynntir sjálfsafgreiðslunni. Þetta er bara allt svo miklu fljótlegra svona, alla vega í mínu tilfelli.

    6. Þetta er í nánast öllum búðum í Svíþjóð og ég nota þetta í hvert einasta skipti!
      Súper þægilegt, versla beint í minn poka, þarf ekki að græja þetta með símanyndavélinni, set skannann svo bara tilbaka og borga og fer.

    7. NordNerdGuy on

      Þetta er í krónunni, nema að þú notar þinn eiginn síma og krónu app. Skráir þar inn þín kort til greiðslu. Ég hef notað þetta næstum því frá því krónan byrjaði með þetta og elska þetta. Mér finnst ég hafa mun betro sýn á því hvað ég er að kaupa og hvað allt kostar. Svo endar maður líka með allar kvittanir í appinu og þær eru líka aðgengilegar í kronan.is. Krónan tekur mann í random tjekk þar sem starfsmaður skannar nokkrar vöru hjá manni.

      Ég hef ekki notað þetta í bónus en veit ekki alveg hvað mér finnst um þessa bónus skanna. Hversu oft eru þeir sótthreinsaðir?
      Hvers höggþolnir eru þeir?

    8. Þetta er búið að vera í notkun í Svíþjóð, þar sem ég bý, í mörg ár. Ég versla ekki án þess að nota þetta.

    9. SalsaDraugur on

      Mér finnst þetta næs, sleppi við að raða í poka á leiðinni út finnst þeir í krónunni vera aðeins of hardcore í öryggischeckinu sem maður lendir stundum í, þau eru allavega meira chill með það í bónus eða bara byrjuð að kannast við mig.

    10. Notaði svona þegar ég var í útlöndum fyrir nokkrum árum og þetta er mesta snilld.

      Af hverju að setja allt ofan í körfuna til að taka allt upp úr körfunni til að skanna það sérstaklega til að síðan setja allt ofan í poka?

      Að skanna og setja í poka er eitt handtak. Búið og bless og farinn að gera eitthvað annað.

      Sérð líka strax hvort það er verið að rukka þig það sem stendur á verðmiðanum.

    11. Ég nota þetta alltaf, get raðað í poka á meðan maður verslað og tekur enga stund að borga.

    12. vandraedagangur on

      Þetta var raunveruleikinn þegar èg bjó í Svíþjóð fyrir 14 árum. Var frekar þægilegt 🙂

    13. Ósammála, Þetta er snilld, flýtir fyrir innkaupaferðinni að mínu mati.

      Einnig finnst krökkunum mínum gaman að koma með og fá að skanna allt 🙂

    14. Skannað og skundað er það besta sem hefur komið fyrir íslenskan dagvörumarkað síðan bónus var opnað.

    15. Ég fíla betur hvernig Krónan gerir þetta, út frá bara kostnaðarsjónarmiði. Plús, Krónuappið býður upp á heimsendingu.

      Eini gallinn er vöruúrval og viðleitni Krónunnar að reyna að vera ekki með sömu vörur og Bónus.

    16. Þetta og sambærilega kerfið hjá Krónunni er snilld! Aldrei verið jafn þægilegt að versla og hægt að fylgjast betur með hvað hlutirnir kosta. Að mínu mati eykur þetta verðvitund og aðhald í innkaupum. Mæli með. Og svo er stemmari að hafa þennan skanna.

    17. Þetta er ekki fyrir mig, en ég veit ekki hvernig það er vandamál?
      Bónus veit betur en ég (eða þú) hvort þetta sé rugl.

    Leave A Reply