
https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-07-07-eg-kveikti-ekki-i-sjalfum-mer-480749
Was für ein Glück wäre es gewesen, wenn es eine Videoaufzeichnung dieses Vorfalls gegeben hätte, hmmm?
Meiner Meinung nach ist die Tatsache, dass die Polizei einem Passanten gedroht hat, ihn zum Löschen des Videos zu zwingen, etwas, das dies sehr verdächtig erscheinen lässt.
„Ég kveikti ekki í sjálfum mér“
byu/latefordinner86 inIceland
Von latefordinner86
8 Kommentare
Þekki aðeins til kauða. Ég væri ekki til í að þurfa að meðhöndla manninn í geðrofi þegar hann er með eldfiman vökva í hendi.
Þægilegt fyrir Jón og Gunnu að vera ekki sett/ur í þær aðstæður að þurfa, skv. skilgreiningu starfsins, að koma manninum úr aðstæðum.
Ef að fleiri en eitt vitni geta staðfest að lögreglan hafi krafið almenning um að eyða upptökum af atvikinu, þá finnst mér að lögfræðilega ætti að það jafngilda játningu að hálfu lögreglumannsinns sem gerði það. Það VERÐA að vera alvarlegar afleiðingar fyrir lögreglumenn eyðileggja sönnunargögn.
(bara svo það sé á hreinu áður en allar löggusleikjurnar byrja að tjá sig: það er munur á því að lögreglan láti fólk eyða upptökum og að lögreglan láti fólk eyða færslum á samfélagsmiðlum. Það hefði verið fullkomlega eðlilegt af lögreglunni að reyna að koma í veg fyrir að upptakan færi í dreifingu, sérstaklega á meðan málið er rannsakað, en að beita sér fyrir því að upptökunni sjálfri sé eytt er ekkert nema einbeittur brotavilji)
„Ég fer úr buxunum og skvetti á mig bensíni til að láta þá bakka frá mér. Ég hélt að það myndi virka“
Ég hefði gert nákvæmlega það sama. Skil ekki að þetta hafi ekki virkað!
[deleted]
Ég verð bara að spyrja, hvað hefði lögreglan átt að gera? Já okay manneskja ætti að vita að það gæti kviknað í honum með að skjóta rafbyssu, en hefði hún frekar átt að reyna að halda honum niðri og hann mögulega kveikja í sér þá? Þá hefði nú farið bensín á lögregluna og einnig kviknað í henni.
Ég held að það hafi ekki verið til nein örugg útkoma í þessu máli.
Á að hafa verið í geðrofi, þykist muna eftir og neitar að hafa kveikt í sjálfum sér, en hver var þá tilgangurinn með að hella bensíni yfir sjálfan sig? Stangast allt saman á
Það er væntanlega til upptaka af þessu úr búkmyndavél. Ef í ljós kemur að lögregla hafi kveikt í manninum finnst mér það ætti vera kært sem tilraun til manndráps.
Fík iefnalögreglan á Íslandi seldi eiturlifin í gegnum þripja aðila sem þeir gerðu upptæk, og er ein af ástæðunum fyrir því að fíknó var lögð niður. Skil ekki þetta blinda traust á lögregluni á Íslandi.