Share.

    9 Kommentare

    1. Johnny_bubblegum on

      Ef hún vill styrkja sambandið við Bandaríkin þá er best að bjóða Ivönku og Kushner eitthvað flott og gefa Trump stað fyrir lúxus hótel eða eitthvað þannig. Kannski bjóðast til að borga hluta í uppgerð á þotunni frá Katar eða versla nýja flotta Trump símann á alþingismenn.

      Hún gæti boðist til að fara og hitta hann sjálf. Trump er mun líklegri til að hitta eina undir fertug og ljóshærða heldur en einhverja sextuga gribbu eins og Þorgerði.

      Koma svo, spila leikinn fyrir land og þjóð!

    2. >„Ég skil ekki að það séu ekki fleiri áhyggjufullir yfir þessu,” segir Diljá Mist í samtali við Vísi. Hún vill reyndar meina að það hafi orðið algjör u-beygja í samskiptum þjóðanna.

      Ég veit að Diljá er að vera óheiðarleg, þykjast ekki skilja hvað hefur gerst og þannig hafa leyfi til að reyna að kenna sitjandi Ríkisstjórn um þessa þróun frekar en að sleppa því bara að bulla og sóa tíma annara.

      En ég veit líka að það skiptir engu máli hvað henni gengur til og fólk er almennt ekki sátt með að aðrir líti á það sem algera vanvita svo ég er alveg tilbúinn að taka hana á orðinu og fullyrða hér eftir, með tilvísun í þessi orð hennar sem og önnur sem hún hefur látið falla, að hún Diljá sé afspyrnu heimsk manneskja.

      Eða lygin – ég er bara farinn að taka eftir því að ákveðin hópur fólks tekur því sem eðlilegum hlut að ljúga til að fá sínu fram og annar stærri hópur tilbúinn að þykjast með þeim svo að það gengur ekkert að benda á það lengur.

    3. Stutturdreki on

      >„Það er risamál,“ segir Diljá Mist og leggur áherslu á orð sín. „Við virðumst bara dottin út úr öllu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fær bara fundi með einhverjum undirmönnum.

      Er þetta ekki bara ágætis vísbending, til þeirra sem vilja halla sér meira til usa heldur en esb, að amk. núverandi stjórn usa hefur nánast bara engan áhuga á íslandi og við erum ekkert sérstaklega hátt skrifaður pappír hjá þeim.

    4. Embarrassed_Tear888 on

      Var í skóla með henni. Held að henni hafi aldrei hrotið satt orð í munn.

    5. Aggressive_Banana708 on

      Ef núverandi stjórn er ekki að sleikja rassgatið á Trump nógu mikið er það stórfínt mál og fagnaðarefni.

    6. Ísland tók þátt í stríðsrekstri gegn Venesúela í byrjun árs.

      Það hefur ekki skilað sér neinu í þessu samhengi og því skiljanlegt að ríkisstjórnin ákvað að hefja viðræður við ESB að nýju.

      Síðan tekur hún fram þáttöku Íslands í kæru SA gegn Ísrael… Veistu ég hallast að því að Trump væri til í að það mál fari fyrir dóm sem fyrst. Það myndi hjálpa Trump að hlekkja sig frá þessu fasistaríki sem Ísrael er enda hefur það engu skilað til Trumps eða Bandaríkjanna.

    Leave A Reply