
RÚV | Der dänische Botschafter lehnte die Vorführung eines umstrittenen grönländischen Dokumentarfilms im Nordischen Haus ab
https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-05-07-sendiherra-danmerkur-beitti-ser-gegn-syningu-umdeildrar-graenlenskrar-heimildarmyndar-i-norraena-husinu-474511
Von AirbreathingDragon
3 Kommentare
TL;DR
Sendiherra Danmerkur á Íslandi og framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar beittu sér bæði gegn því að umdeild grænlensk heimildarmynd yrði sýnd í Norræna húsinu í mars. Frá þessu greinir fagblað danska blaðamannasambandsins, Journalisten. Hið hvíta gull Grænlands átti að sýna í Norræna húsinu 22. mars, og boð á sýninguna var sent danska sendiráðinu 19. mars. Skömmu síðar var sýningin tekin af dagskrá.
[Journalisten vitnar í frétt sinni](https://journalisten.dk/dansk-ambassade-blev-inviteret-til-visning-af-udskaeldt-dokumentar-kort-efter-var-den-aflyst/) í tölvupóstsamskipti milli Sabina Westerholm, forstjóra Norræna hússins, og Erik Vilstrup Lorenzen, sendiherra Danmerkur á Íslandi, frá 19. mars, sem fjölmiðillinn hefur undir höndum. Í tölvupóstinum þakkar Sabina Erik fyrir samtalið og fyrir að hafa vakið athygli hennar á „vandanum við fyrirkomulag“ sýningarinnar (d. problematikken i vores arrangement). Hún hafi rætt málið innanhúss og við Norrænu ráðherranefndina.
Sólveig Ásta Sigurðardóttir, nýdoktor við Háskóla Íslands sem stundar rannsóknir á sviði nýlendustefnu, og Bryndís Björnsdóttir, doktorsnemi, sem stóðu að fyrirhugaðri sýningu á Hinu hvíta gulli Grænlands í Norræna húsinu, segjast fullvissar um að myndin hafi verið tekin úr sýningu vegna pólitískrar pressu.
Þær segja Norræna húsið hafa haft samband við þær þremur dögum fyrir sýningu og upplýst um að sýningin gæti aðeins farið fram ef hún yrði sýnd af annarri stofnun og að sýningunni fylgdu pallborðsumræður með þátttakendum frá Danmörku og Grænlandi. Sólveig Ásta segir að þær hafi fundið þátttakendur en að Norræna húsið hafi sagt að fyrirvarinn væri of stuttur til að fara yfir og samþykkja þátttakendur.
„Mér fannst eins og þeir hefðu þegar tekið ákvörðun,“ segir Bryndís við Journalisten. „Ég á enn erfitt með að hugsa til þeirrar staðreyndar að bæði danski sendiherrann og framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar skyldu verja tíma sínum í að grípa inn í sýningu á heimildarmynd sem byggir á grænlenskum röddum,“ segir Sólveig Ásta í samtali við Journalisten.
Grænland þarf meiri og betri stuðning en þau eru að fá og danir vita það.
Fokk Danmörk.
Hvað kemur fram í þessari mynd sem varð til þess að DR tók hana úr sýningu og ritstjóri DR sagði af sér? En því er líka haldið fram að hún standist ekki faglegar kröfur.