
Hat der Minister für Kinderangelegenheiten Ingó Veðurguð wirklich verteidigt? Wir sind als Gesellschaft an einem sehr gefährlichen Punkt angelangt, wenn dies die Botschaft des Ministers für Kinderangelegenheiten an die Gesellschaft ist.
https://www.visir.is/g/20262874896d/inga-kemur-ingo-til-varnar
Von numix90
9 Kommentare
https://preview.redd.it/l2ibxh50asxg1.jpeg?width=767&format=pjpg&auto=webp&s=e93a01c808df1bdf11aeb82a87ea3ea7d97996f8
Jahérna.
„Inga sagði að fólk ætti ekki að haga sér eins og Ingó væri sekur án dóms.
„Var maðurinn dæmdur til dæmis? Var Ingó dæmdur fyrir eitthvað? Nei. Af hverju er þá verið að láta eins og hann sé sekur um ekkert?“ sagði Inga.
Inga vísaði í framhaldinu til laga og sakleysisreglunnar.
„Við erum með löggjöf. Og til dæmis í almennum hegningarlögum, fyrstu grein. Það eru allir saklausir uns sekt hefur verið sönnuð á viðkomandi fyrir óvilhöllum dómstólum,“ sagði Inga.“
Íslenskt réttarkerfi, frá lögreglu til dómstóla, er einstaklega lélegt í að vinna í kynferðisbrotamálum. Þetta veit hver manneskja sem hefur sett sig bara örlítið inn í þann málaflokk.
Það að ráðherra tali með þessum hætti um mann sem hefur **ítrekað** verið bendlaður við og ásakaður um nauðganir og kynferðisbrot gagnvart ungum konum sem og unglingstúlkum á barnsaldri (undir 18 er barn!) er í raun stórfurðulegt. Þarna er í besta falli mikill dómgreindarskortur á ferð eða gífurleg meðvirkni með einstaklingi sem hefur ítrekað verið bendlaður við mjög alvarlega glæpi.
Það að barnamálaráðherra hafi látið þetta úr sér er álíka skandall og þegar Robert Downey fékk uppreist æru.
Ömurlegt að ráðherra mæti í þetta hlaðvarp.
Er hún að reyna sprengja ríkisstjórnina?
Nú þarf nauðsynlega að endurskoða stöðu hennar sem ráðherra! Vá hvað ég er ánægð að eiga ekki börn a þeim tíma sem barna og menntamálaráðherra er að vernda meintan barnaníðing og nauðgara.
Las þessa frétt í dag. Gat ekki annað en hugsað hvað þessa konu skortur alla social skills hæfni sem svona starf krefur
Við þurfum að muna að í lýðræðisríki hafa allir rétt á sinni skoðun og sínum fulltrúa á þingi. Inga er fulltrúi allra sem eru útskrifaðir úr skóla lífsins, hún talar fyrir alla sem fara út úr húsi í flíspeysu og crocs. Þetta fólk þarf sinn fulltrúa á þingi eins og allir aðrir.
Stundum finnst mér Flokkur fólksins vera svolítið einsog Miðflokkur vinstrisins. Inga getur verið frekar gamaldags og íhaldssöm, þótt ég hafi af mörgu leyti gaman að henni. Þetta er auðvitað svona týpisk boomera meðvirkni með kynferðisafbrotamönnum.
Og smá rant um eithvað ótengt akkúrat þessu…. Ég kann mikið að meta að FF sé að einblína á velferð þeirra sem minna mega sín í landinu, einsog öryrkja, aldraða oþh, en annað sem gerði pínu útaf við mig. Þegar þeim var boðið á pallborðsumræðu hjá Félaginu Ísland- Palestína í aðdraganda síðustu kosninga, voru þrír flokkar sem mættu ekki; Sjáfstæðisflokkurinn og Miðflokkurinn (ekki víð öðru að búast) og svo Flokkur fólksins. Meiraðsegja Framsókn mætti. I get it, þeir eru að einblína að fólkið í landinu, en ef þú þykist vera vinur „litla mannsins“ og sérð ekki einusinni sóma þinn í að mæta í spjall þegar það er yfirstandandi fjöldadráp á börnum, eh sem kemur allri heimsbyggðinni við, þá get ég ekki tekið mark á þér.
Inga Sæland að vera Inga Sæland.