Share.

3 Kommentare

  1. Mjög góð grein og greining hjá Kolbrúnu

    > Ansi oft vita harðlínu-flokkshestar ekki hvað flokki þeirra er fyrir bestu – þótt sú hugsun hvarfli aldrei að þeim í sjálfumgleði vegna vissu um eigin yfirburði. Þetta á við um þann hóp sjálfstæðismanna sem hafa beinlínis unnið að því að skaða eigin flokk með öfgafullum áherslum sem hafa flæmt kjósendur frá flokknum. Fátt afsakar til dæmis ofstækisfulla bræði vegna fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið. Það er eins og það hafi gjörsamlega farið fram hjá þessum hópi að kjósendum er fullkomlega frjálst að segja nei. Þeir þurfa heldur ekki að mæta á kjörstað frekar en þeir vilja.

    >Brotthvarf Þórdísar Kolbrúnar er missir fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Harðasta hægrið í flokknum mun vissulega ekki sakna hennar. Þeir sem vilja heiðarleg stjórnmál munu hins vegar sakna Þórdísar Kolbrúnar úr íslenskum stjórnmálum um leið og þeir óska henni velfarnaðar á nýjum vettvangi.

    >Þess skal einnig óskað að Sjálfstæðisflokkurinn finni aftur fjölina sína. Þó eru ekki miklar líkur á að það gerist á næstunni. Flokkurinn virðist vera búinn að brjóta og týna stefnu sem áður laðaði að kjósendur úr öllum stéttum samfélagsins. Það er vitanlega rannsóknarefni út af fyrir sig hvernig hægt er að glutra niður fylgi í jafn miklum mæli og Sjálfstæðisflokkurinn hefur gert á síðustu misserum. Freistandi er að líkja því við hrun Gömlu Samfylkingarinnar sem var steinhætt að hlusta á kjósendur, talaði stöðugt niður til þeirra og skynjaði ekki straumana í þjóðfélaginu.

    Held að þetta sé hárrétt hjá henni, flokkurinn er í vítahring þess að það er bara harðasti kjarninn sem hefur áhrif á stefnu flokksins og fær framgang, sem ýtir út hófsamari röddum sem þýðir að harðasti kjarninn hafi enn meiri tangarhald á öllu sem flokkurinn gerir. Nákvæmlega sami vítahringur og Samfó fór í gegnum sem skilaði sér í einungis 3 kjörnum þingmönnum 2016.

    Ég efa að Sjálfstæðisflokkurinn fari svo langt niður og mér þykir líklegt að á einhverjum tímapunkti komi stefnubreyting og viðspyrna en ég hugsa að spírallinn niður á við sé ekki búinn og að við erum ekki búin að sjá hversu langt niður Sjálfstæðisflokkurinn mun fara.

  2. ÞKRG virtist orðin einangruð innan flokksins með sín sjónarmið um alþjóðamál, og það er vægast sagt sérstök staða fyrir fyrrverandi varaformann flokksins og utanríkisráðherra. Hafi verið einhverjir fleiri í þingflokki xD sem voru sammála því að heimurinn væri að breytast og við þyrftum að vera tilbúin að endurmeta okkar alþjóðasamskipti, þá var amk ekki að sjá að þeir veittu henni neinn stuðning.

    Þetta er bæði grátleg og grafalvarleg staða að xD sé að leggja upp með það að aðalatriðið sé ESB andstaðan og að fella ríkisstjórnina, og að meðan sá slagur vari sé alger samstaða um það í þingflokknum að vera í afneitun á breyttum heimi og breyttum aðstæðum. Þrátt fyrir hótanir BNA gegn Grænlandi, Danmörku og NATO, og ýmislegt fleira, þá eigi góð samskipti við stjórnvöld í BNA að ganga framar öðru í alþjóðamálum, jafnvel þó þau daðri við einræðistilburði heimafyrir (sbr 6jan21) og sækist eftir góðum samskiptum við einræðisríki frekar en lýðræðisríki.

    Þau eru ennfremur með opinbera stefnu um að reyna að sundra ESB og veikja innbyrðis samskipti þar innandyra. 80% af okkar utanríkisviðskiptum eru við Evrópu og yfir 60% innan ESB.

Leave A Reply