Die Politik des Grolls gerät aus der Mode, während ein Mann mit einem genagelten Tesla fragt, was los ist

https://www.thordursnaer.is/p/gremjup-lit-k-a-detta-r-t-sku-me-an-ma-ur-negldri-teslu-spyr-hva-s-gangi?fbclid=IwY2xjawRYB-JleHRuA2FlbQIxMABicmlkETA4Q1Nadm85a05aR3JTc0dMc3J0YwZhcHBfaWQQMjIyMDM5MTc4ODIwMDg5MgABHgIZL0dCHeBbR9K3l5e9Ej9M7pFjib9Fu_u3-L4tr_g8iYSmZh62lrCieIBC_aem_mZIxGFMaROBftGdELBiaIQ

Von Calcutec_1

3 Kommentare

  1. Held að þetta sé mjög rétt greining hjá Þórði, þessi focus Miðflokksins á amerísk menningarstríð er illa tímasett þar sem MAGA er að liðast í sundur vestanhafs og flest fólk er að díla við alvöru vandamál eins og sífellt hækkandi orku, húsnæðis og orkuverð, óstöðugleika í alþjóðamálum og annað sem að hefur alvöru áhrif á daglegt líf fólks, ólíkt fánum, transfólki og biblíusögum .

  2. **“Þegar gramir verður gramari yfir skorti á gremju“ 🤣**

    Þetta nær svakalega mikið inn á það sem ég sé í þessari hegðun fárra einstaklinga hér sem kalla r/iceland ítrekað „vinstri sinnað“ og geri sér ekki grein fyrir því hvað það hefur slæm áhrif á „málstað“ þeirra að kalla alla sem eru ekki 100% sammála þeim á stundinni „til vinstri“ – ef fólk er ekki tilbúið í tilfinningargremju gagnvart náunganum þá er það bara vinstri sinnað í stjórnmálum og hananú!

    Staðreyndin er auðvitað að r/iceland er mjög miðjusinnað eins og restin af samfélaginu okkar. Sem manneskja sem er frekar mikið á vinstri jaðari stjórnmála þá finnst mér sprenghlægilegt að sjá fólk tala fyrir frjálslyndum markaðslausnum og vera síðan kallað „vinstri sinnað“ af einhverjum rugludalli sem upplifir allt mótlæti á skoðunum sínum sem árás frá óvinum sínum og flokkar því allan stjórnmálaágreining á hægri væng sem „woke vinstri pólitík“.

    Svo er líka fyndið að sjá hvaða mynd afturhalds-sjálfsmyndarsjórnmál taka, sem höfnunar-viðbrögð við sjálfsmyndarstjórnmálum seinustu áratuga. Þetta er allt svakalega tragekómískt frá fjarlægð – en um leið og þetta byrhjar að gerjast í fjölskyldum eða vinahópum ykkar þá er það ömurlegt og ég vill ekki gera lítið úr því vandamáli.

  3. Equivalent_Day_4078 on

    Gremjupólitík, eða grievance, er líka svo fáránleg nálgun á stjórnmál. Frasinn sem maður heyrir oft er: „Það að þið vinstrimenn séuð svona vond við fólk sem er ósammála ykkur er ástæðan fyrir því af hverju fólk kýs hægri.“ Þetta er fáránlegt út frá tveimur þáttum.

    Í fyrsta lagi eru stjórnmál ekki félagsklúbbur. Þú átt ekki að mynda skoðanir eftir því hvernig fólk með ákveðnar skoðanir kemur fram við þig. Ef allir sköpunarsinnar væru kurteisir við mig en allir sem aðhyllast þróunarkenninguna hötuðu mig, þá breytir það ekki því hvað mér finnst um sannleiksgildi þróunarkenningarinnar. Nákvæmlega eins og skoðanir þínar um heilbrigðismál, efnahagsmál, félagsmál og fleira eiga ekki að mótast út frá því hverjir eru kurteisir.

    Í öðru lagi er þetta vandamál ekki hægt að leysa stjórnmálalega. Það er ekkert frumvarp á Alþingi sem Miðflokkurinn getur sett fram sem lætur konuna með neflokka og blátt hár fara að líka við þig.

    Á endanum snýst þetta að því leiti að fólk vill beita pólitísku valdi til að ná fram menningarlegu valdi (það að fólk mun bera virðingu fyrir þér og þínum lifnaðarháttum). Sú leið bara virkar ekki, og ef þér finnst þú vera alienated þá er lausnin ekki „Ég ætla kjósa fólk sem manneskja x eða hópur y hatar þangað til þeir bera virðingu fyrir mér.“

Leave A Reply