Zentristen sind unbeliebter als Muslime

https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-04-08-midflokksmenn-ovinsaelli-en-muslimar-472141

Von numix90

8 Kommentare

  1. Áhugavert að lesa þennan lista frá botni til tops. Byrjar í kommutölum gagnvart mjög breiðum hópum sem skilgreinast af t.d. kynvitund, fæðingarlandi, eða grundvallar afstöðu til trúarmála. Rampar svo upp í tugi prósenta gagnvart mikið afmarkaðari hópum skilgreindum af pólitískum skoðunum og svo síðast afstöðu til einstakra málefna.

    Það mætti greina þær tölur sem að mikill minnihluti þjóðarinnar leyfir sér að skilgreina fólk neikvætt út frá breiðum hópeinkennum sem verma neðri part listans, og meirihlutinn kjósi frekar að líta til hvort að þrengri skilgreindar hegðunar einstaklingsins fari út fyrir velsæmismörk.

  2. Óþarflega ónákvæmt orðaval í fyrirsögn, „óvinsælli“? Það er beinlínis spurt hvaða hóp þér „mislíkar mjög“. Að mislíka mjög einstaklinga út frá því að þeir tilheyra trúarhópi eða hafa öðruvísi kynvitund daðrar við það að vera hatur og er það jafnvel í stórum hluta tilvika. Ég held það sé í lagi að gefa sér það að að mörgu leyti sé hér verið að tala um algjöra andúð og óbeit ef ekki hatur.

    Það er gífurlega stórt áhyggjuefni að múslimahatur, að svo miklu leyti sem þetta er hatur, hafi nánast tvöfaldast á síðustu 4 árum. Gyðingahatur hefur líka tæplega tvöfaldast á sama tíma og andúð gegn innflytjendum rúmlega tvöfaldaðist.

    Hatur gegn stuðningsfólki VG og Viðreisnar tvöfaldaðist líka á sama tíma.

    Það er engin marktæk breyting á hatri þar sem það er að minnka að einhverju talsverðu leyti, nema gagnvart vopnasöfnurum. Í þessu samhengi er þetta allt sama áhyggjuefnið.

    Við erum komin inn í eitthvað haturssamfélag. Hatrið vísar allt í sömu átt. Mun það sigra?

  3. Miðflokksmenn segja alltaf að öll þjóðin hugsi eins og þeir.

    Not quite jack.

  4. ToadNamedGoat on

    21% er samt svaka stór hópur.
    -ég hef meiri áhyggjur á þeim sem mislíkar við Múslíma en Miðflokksmenn

    Ég skil eiginlega ekki að mislíka fólk nema kannski efstu 2 hópana (kannski efstu 6 – ég hata orðið “þjóðernissinar”, því ég elska Ísland en ég held ekki að Íslendingar eru betri eða mikilvægari en aðrar manneskjur sem eru ekki Íslendingar)

    Annars er ég gagnrýnin af mörgum Miðflokksmönnum og Múslímum en mér myndi aldrei hugsa mér að mislíka það fólk.
    Bara ósammála á mörgum hlutum.

    [Bólusetningar virka og það er þjóðarmorð í Gaza]

  5. Equivalent_Day_4078 on

    Ég skil ekki Íslendinga. Hvernig getur fólk mislíkað fólk sem heldur að það séu bara til tvö kyn meira en stuðningsmenn Miðflokks? Ég veit ekki hvort það sé til nokkur stuðningsmaður Miðflokks sem er ekki í sá fyrrnefnda hópi.

  6. Eg a mjög erfitt með að vera beinlínis illa við anti vax liðið. Mér þykja þeir vera vitlausir… en beinlínis illa við þá?

    Hafa lika enginn samfelagsleg ítök

Leave A Reply