So bereiteten sich die Dänen auf einen möglichen US-Angriff auf Grönland vor – RÚV.is

https://www.ruv.is/frettir/erlent/2026-03-19-svona-bjuggu-danir-sig-undir-mogulega-aras-bandarikjanna-a-graenland-470286

Von birkir

Ein Kommentar

  1. >Danski herinn flaug með birgðir af blóði til Grænlands í byrjun árs eftir hótanir Trumps um að taka yfir landið. Herinn bjó sig einnig undir að sprengja flugbrautir til að koma í veg fyrir að hægt yrði að lenda þotum Bandaríkjahers.
    >
    >Fljótlega eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti hótaði að taka yfir Grænland í byrjun árs flutti danski herinn birgðir af blóði frá blóðbönkum til landsins. Blóðið átti að vera til taks ef fólk myndi særast kæmi til átaka á Grænlandi við mögulega yfirtöku Bandaríkjahers. Þetta hefur danska ríkisútvarpið, DR, eftir heimildamönnum sínum innan danska stjórnkerfisins og frá leyniþjónustustofnunum í Danmörku, Frakklandi og Þýskalandi.
    >
    >Bandaríkjaher réðst inn í Venesúela 3. janúar, handtók forsetahjón landsins og flutti til Bandaríkjanna. Næsta dag lýsti Trump því yfir að Bandaríkin þyrftu að taka yfir Grænland í nafni þjóðaröryggis. Það var ekki fyrr en 21. janúar á alþjóðlegu efnahagsráðstefnunni í Davos sem Bandaríkjaforseti útilokaði að beita hervaldi á Grænlandi.
    >
    >Eftir hótanir Trumps í byrjun árs voru danskir, norskir, sænskir, franskir og þýskir hermenn fluttir til Grænlands. Dönsku hermennirnir höfðu sprengiefni með í för. Hugmyndin var að ef Bandaríkin létu verða af hótunum um beitingu hervalds myndu þeir sprengja upp flugbrautir í Nuuk og Kangerlussuaq og þannig koma í veg fyrir að hægt yrði að lenda bandarískum herþotum þar.

    Skelfilegt að heyra af raunveruleikanum sem nágrannar okkar hafa verið að ganga í gegnum og furðulegt hversu oft Ísland var nefnt í samhengi við þessar sömu hugsanlegu aðgerðir sem Danir voru þarna að verjast.

Leave A Reply