Ætlaði að hlusta á upphaf umræðu um þingsályktunartillögu um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu en hún kemst ekki að þar sem minnihlutinn er strax farinn að beita sömu aðferðafræði og á síðasta ári þegar stór mál, líkt og veiðigjaldið, var rætt.
Undir liðnum fundarstjórn forseta mæta þingmenn minnihlutans aftur og aftur upp í pontu að segja nákvæmlega sama hlutinn aftur og aftur með uppgerðar bræði og tilgerðarsemi. Væna utanríkisráðherra um brot á þingsakaparlögum og plott með embættismönnum í Brussel, sem allir heilvita menn sjá að stenst enga skoðun.
Þá finnst mér sérstaklega hjákátlegt, jafnvel grátlegt, að minnihlutinn sakar ríkisstjórnina um skort á samráði við þjóðina þegar hún er bókstaflega að leggja það til að þjóðin verði spurð beint um sitt álit á málinu í gegnum þjóðaratkvæðagreiðslu!
Sérstaklega finnst mér það ósvífið þegar það kemur frá mönnum eins og Sigmundi Davíð sem var forsætisráðherra sem tók einhliða ákvörðun um að slíta viðræðum við ESB án þess að hafa nokkurt samráð við þjóðina þrátt fyrir að hafa lofað að hafa þjóðaratkvæðagreiðslu um málið.
Það er greinilegt að minnihlutinn hefur ekkert lært af síðasta þingi þegar sem þjóðin hefur sjaldan, ef nokkrun tíman, verið jafn andvíg minnihluta þingsins út af akkúrat svona lágkúrulegum vinnubrögðum.
Johnny_bubblegum on
Það er öllum fyrir bestu að fá niðurstöðu í þetta helvitis mál og skapa vinnufrið, rétt eins og um kvótakerfið.
En íhaldið er svo hrætt við að leyfa fólki að ráða að það vill frekar flytja inn MAGA hreyfinguna og taka upp orðræðu repúblikana en leyfa fólki að kjósa beint.
Hverjum er ekki drullusama þó það sé kosið í sumar um að halda áfram viðræðum? Í alvöru…
Þessi minnihluti gerir sitt besta til að tefja málin, kvartar svo undan því það sé ekkert að gerast hjá ríkisstjórninni.
Við erum föst í hálfgerðu ofbeldissambandi með helvítis íhaldinu.
OG HVERNIG FÆR SIGMUNDUR AÐ MÆTA Í EITT EINASTA VIÐTAL ÁN ÞESS AÐ HANN SÉ HUNDELTUR VARÐANDI LEYNIFUNDI SÍNA MEÐ BANDARÍKJAMÖNNUM????
Lafi90_ on
Það hlýtur að vera lágmark að Þingsskaparlögum sé fylgt.
Aggressive_Banana708 on
Ég skil ekki af hverju þau eru svona svakalega á móti þessari atkvæðagreiðslu. Ef þjóðin kýs nei, sem er alveg raunhæfur möguleiki, þá verður ESB-aðild í raun slegin út af borðinu um fyrirsjáanlega framtíð og ríkisstjórnin á eftir að standa mun veikari fæti út kjörtímabilið. Það væri sterkari leikur hjá stjórnarandstöðunni að bara taka atkvæðagreiðslunni opnum örmum og byrja að undirbúa kosningaherferð fyrir nei-inu.
Það að stjórnarandstaðan sé svona svakalega á móti því að halda atkvæðagreiðsluna yfirhöfuð sendir eiginlega þau skilaboð að hún sé hrædd um að þjóðin myndi kjósa já, og vilji ekki gefa henni tækifæri til þess. Sem er ekkert gott lúkk, sama hvernig maður stillir því upp.
Geesle on
Skref 1: **Ganga í ESB** og öðlast fulla aðild. Nýta aðildaviðræðurnar sem þvingandi tækifæri til að nútímavæða og samræma íslensk lög á öllum sviðum — dómskerfið, efnahagslegar reglugerðir, fyrirtækjaréttindaramma og stafrænisvæða stjórnkerfin. Aðlögunarferlið verður krefjandi og strangt, en það er einmitt tilgangurinn.
SKref 2: **Vera í ESB nógu lengi til að njóta góðs af stöguleika** með tillit til evrunnar, tengingu Seðlabanka við Evrópu, og minnkandi spillingu í bæði einka- og ríkismálum.
Skref 3: **Ganga úr ESB og pulla brexit** en með yfirvegaðri og meðvitaðri nálgun. Koma út sem sterkari þjóð með nútímavætt og traust lagaumhverfi. Endurheimta auðlindir okkar (ef við misstum þær við inngöngu) og fá aftur fullveldi yfir gjaldmiðlinum og seðlabankanum.
Skref 4: **Hagnaður**
Leave A Reply
Du musst angemeldet sein, um einen Kommentar abzugeben.
5 Kommentare