Gute oder schlechte Idee?

https://www.visir.is/g/20262844291d/nyr-samfelagsmidill-bara-fyrir-islenskt-samfelag

Von iso-joe

6 Kommentare

  1. Tja Reddit þráðurinn þegar þessi strákur var að kynna appið varð fljótt frekar vandræðalegur. Mikil fiskilykt af þessu öllusaman.

  2. Skil ekki tilganginn með þessu.

    Fór þarna inn og myndir af einhverju liði ut í bæ sem mér gæti ekki verið meira sama hvað það væri að gera. T.d. Doddi og strákarnir með bojs night

    Búinn að eyða aðganginum mínum

  3. Johnny_bubblegum on

    Þetta er mjög góð hugmynd. Tryggir ómenguð gögn um íslenska notendur sem hægt er að safna, nota og selja. Appið er frítt og án auglýsinga þannig ég býst við að peninginn sé að finna í gögnum og svo væntanlega auglýsingum seinna meir þegar notendur eru orðnir nógu margir.

    Íslensk útgáfa af facebook og við vitum hvað Facebook var frábært fyrir samfélagið þannig þetta getur ekki klikkað.

  4. Ef þetta verður eitthvað fyrirbrigði þá stofna ég kannski aðgang og verð með.

    Eftir að ég hætti að nota Facebook og það allt þá tók ég upp á því að hafa bara beint samband við fólk sem ég vildi vera í sambandi við. Það er mikið huggulegra að vera í reglulegu símasambandi eða skilaboðaþræði við 15 manns frekar en ópersónulegu setja læk á færslu sambandi við 300 manns. Þessi samfélagsmiðlamenning sem hefur verið seinustu 15+ árin má alveg deyja hvað mig varðar.

  5. Mysterious_Demand875 on

    Asnalegt að vera ekki með vefsíðu heldur bara App… Það vill enginn annað app.

Leave A Reply