Warum ist die Inflation hier viel höher als in anderen nordischen Ländern?

https://i.redd.it/rnugkpm9kohg1.jpeg

Von Einn1Tveir2

8 Kommentare

  1. Proper_Tea_1048 on

    Ættum líka að vera spurja hvað eru finnar, svíðþjóð og færeyar að gera til að halda verðbolgunni í algjöru lámarki.

  2. Vinsæla svarið er að kenna krónunni um þetta.

    Raunverulega svarið er að stjórnmálin okkar, það er efnahagsstefna og peningastefna ríkisstjórna lýðveldisins, haga regluverkum á þá vegu að verð á þeim hlutum sem falla undir neysluvísitöluna okkar fá að hækka og hækka óáreittir og allt tal um að koma einhverjum höldum á verð á marköðum hérna er alltaf drepið á dreif í rifrildi um launastefnu í einkageiranum.

    En í raun er það ríkið sem á að koma höldum á verðlag, ekki einkageirinn, ekki verkalýðsfélög, og alls ekki á vinnandi fólk. Ríkið sér um að halda niðri verðbólgu, og ríkið gæti valið að henda út krónunni ef ríkið teldi að það væri væntanlegt til sigurs.

    Ég sjálfur veit ekki hvort krónan sé svo ómöguleg að við ættum að henda henni eins og plágunni – ég hef ekki menntunina, eða reynsluna, sem þarf til að greina þá fjölmargvíðu spurningu. En ég veit að frá því verðtryggingu var komið á, fyrst bæði á laun og skuldir og svo afnumin næstumþví samdægurs af launum – þá hefur ríkið hagað seglum sínum þannig að verðbólga er óumflýjanleg og að afleiðingar hennar enda alltaf á neytendum, en ekki fjármagnseigendum eða stofnununum þeirra.

    Kannski er bæði satt – það er kannski er krónan ómöguleg, og ríkið er að spila þennan leik vitandi það. Þá myndi ég samt vilja að ríkið hætti að spila þennan leik samhliða því að taka upp annan gjaldmiðil af því annars heldur ríkið bara áfram að spila sama leik með nýja gjaldmiðlinum þó svo að það þurfi að finna önnur tól en peningastefnuna sem við hefðum þá gefið frá okkur til erlendra stofnanna.

  3. Morvenn-Vahl on

    Verðtryggingin. Hún bókstaflega nærist á sjálfri sér og hækkar og hækkar allt. Gerir það að verkum að hlutir eins og húsnæði verður að fjárfestingu(„gott að fjárfesta í steypu”) og [þá hækkar fasteignaverð sem hækkar svo aftur verðbólguna sem fer svo aftur í fasteignakostnað/lán og svo koll af kolli.](https://youtu.be/PGNiXGX2nLU)

    [https://www.researchgate.net/publication/235633200_An_Examination_of_the_effect_on_the_Icelandic_Banking_System_of_Verdtryggd_Lan_Indexed-Linked_Loans](https://www.researchgate.net/publication/235633200_An_Examination_of_the_effect_on_the_Icelandic_Banking_System_of_Verdtryggd_Lan_Indexed-Linked_Loans)

    >Based on this analysis there appears to be no evidence or mechanism that would support the claim that index-linked loans reduce or stop ination. On the contrary: our research shows that the bookkeeping treatment of these loans within the banking system directly contributes to the banking system’s monetary expansion rate, and hence index-linked loans act to increase the ination rate to which they are linked, rather than reducing it.

  4. Af því við erum með 0 rent control og leigufélögum hefur verið leyft að gera það sem þau vilja.

    Að gera eitthvað í því myndi hafa sjúklega miklar afleiðingar fyrir húsnæðisverð, svo allir sem eiga húsnæði eru í raun á móti því að gera eitthvað í þessu.

    Það er ótrúlegt að það sé svona lítið talað um þetta eða svona lítið gert í þessu

  5. NordNerdGuy on

    Það litla sem ég veit…

    En ástæðan er einfaldlega krónan, sem veldur lítilli samkeppni milli verslana, verðtryggingu og miklum gengissveifum.

    Krónan er örmynnt og er ekki viðurkenndur gjaldmiðil út í hinum stóra heimi, þú getur ekki farið með 1000 kr í banka í DK og fengið honum skipt hvar sem. Hann er verðlaus.
    Krónan sveiflast mjög mikið upp og niður og gerir erfitt fyrir fyrirtæki að gera framtíðar plön.

    Svíðþjóð og Noregur er með mun stöðugra og traustara hagkerfi til að halda sínum gjaldmiðli stöðugum
    Danir eru búnir að negla sinn gjaldmiðil við Evruna.

    Ef við myndum losa okkur við krónuna, festa hana við evruna eða taka upp annan stöðugan gjaldmiðil, þá myndi stöðuleiki koma á íslenskan efnahag, erlend fyrirtæki nema land, tryggingarfélög, bankar etc.

    Það er allavega sem ég og aðrir vitrari halda.

Leave A Reply