Share.

    5 Kommentare

    1. >Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins, hefur tilkynnt að hún muni bjóða sig fram í borgartjórnarkosningum í vor. Það gerir hún undir merkjum nýs framboðs, Vors til vinstri, **en þó ætlar hún ekki að segja sig úr Sósíalistaflokknum.**

      jæja, þar fór það

    2. Upbeat-Pen-1631 on

      Ég kann að meta Sönnu og það sem hún stendur fyrir í pólitík og ég efast ekki um að þetta framboð og þeirra áherslur komi sér vel fyrir borgarbúa nái þau inn fólki en ég er ansi hræddur um að klofningsframboð á vinstri vængnum sé ekki það sem að Borgin þarf í aðdraganda kosninga. Maður getur bara vonað að þau sópi að minnsta kosti til sín öllu Sósíalistafylginu. Vonum það besta

    3. Af hverju getur hún ekki bara hætt í Sósíalistaflokknum?
      Hún lætur eins og algjört barn.

    4. Samningaviðræður við Pírata og VG um sameiginlegt framboð virðast ekki hafa gengið hnökralaust.

    5. Verandi vinstri maður þá get ég sagt að það eina sem mér finnst meira óþolandi en hægrið eru aðrir vinstri menn.

    Leave A Reply