Share.

    2 Kommentare

    1. > Klukkan 00:39 í nótt barst útkall á allar björgunarsveitir í Árnessýslu vegna ferðamanns sem hafði fest bíl sinn á Nesjavallaleið og hafið göngu frá bílnum.
      >
      > Tveir félagar sveitarinnar svöruðu kallinu og héldu á vettvang á Tinna 2.
      >
      > Hafði hann gengið um 5 kílómetra frá bílnum og orðinn verulega kaldur þar sem hann beið í skjóli við hitaveitulögnina meðfram veginum þegar hann fannst.
      >
      > Var honum komið fyrir í bíl sveitarinnar og ekið sem leið lá til baka yfir Nesjavallaleið og á ION Hótel þar sem hann átti bókaða gistingu.
      >
      > Sagði hann okkur á leiðinni að hann hafði átt samskipti við Chat GPT á meðan hann beið og meðal annars spurt hvort að björgunarsveitirnar myndu finna hann.
      >
      > Svarið var einfalt, “ hafðu engar áhyggjur þau eru að koma og sækja þig, björgunarsveitirnar eru bestar.“
      >
      > Menn og tæki komin í hús 03:10

      fylgir ekki sögunni hvaðan hann hafi fengið ráðlegginguna um að labba 5 kílómetra frá bílnum sínum sem hann festi í snjó um miðja nótt

    2. Hér fær sá svarið sitt sem var að spá afhverju bílaleigur bönnuðu túristum að keyra bílaleigubíla uppá fjallvegi. Er Nesjavallaleið ekki lokuð allan veturinn?

    Leave A Reply