Share.

    3 Kommentare

    1. „Íslendingar koma best út úr skýrslunni þegar það kemur að áfengi miðað við aðrar Norðurlandaþjóðir. Af þeim

      > Samkvæmt skýrslunni er neysla á áfengi tengd við ýmsa þætti sem hafa neikvæð áhrif á heilsufar. Neysla á því eykur líkur á krabbameini og slysum og er almennt talið hafa slæm áhrif á mataræði.

      Að meðaltali drekka Norðurlandabúar einn til tvo áfenga drykki í hverri viku. Hæst er hlutfallið í Danmörku þar sem það eru 5,2 drykkir í viku. Lægst er það hér á landi þar sem við drekkum almennt 2,5 áfenga drykki í viku.

      Þá voru tilfelli ölvunardrykkju, þegar drukknir eru fimm eða fleiri áfengisdrykkir í einu, einnig hæst í Danmörku. Þar sögðust 45% að þeir hefðu stundað ölvunardrykkju undanfarinn mánuð. Það hlutfall var lægst í Svíþjóð þar sem 32,4% sögðust hafa stundað slíka drykkju.

      Á Íslandi var hlutfall ölvunardrykkju í undanförnum mánuði 37% meðal svarenda.

      Athygli vekur að almennt minnkaði áfengisdrykkja hér á landi miðað við síðustu könnun frá árinu 2014.“

    2. Ég heyri ekki svona fréttir í miðri lakkrístoppa-vertíð,

      ræðum þetta í janúar frekar….

    Leave A Reply