Share.

    5 Kommentare

    1. >Yfirlýsing barna- og menntamálaráðherra þar sem hann sakar Morgunblaðið um ófagleg vinnubrögð er alvarleg aðför að fjölmiðlafrelsi á Íslandi. Þetta segir [Sigríður Dögg Auðunsdóttir,] formaður Blaðamannafélags Íslands sem segir hana bera með sér mikla vanþekkingu og afhjúpa hættuleg viðhorf.
      >
      >[…]
      >
      > „Það er bara mjög alvarlegt, alvarlegt að valdamenn séu eins og þarna að grafa undan trausti á fjölmiðla, trausti til blaðamanna og þar af leiðandi veikja þessar stoðir sem eiga að vera einmitt að veita þeim aðhald, veita almenningi upplýsingar.“
      >
      > Ráðherra sé í yfirlýsingu sinni að nota orð sem hann annað hvort skilji ekki eða þá til þess að refsa fjölmiðli fyrir að flytja ekki fréttir með þeim hætti sem honum eru þóknanlegar. „Ég veit ekki hvort er verra en ég vona innilega að þetta sé vanþekking á hlutverki fjölmiðla og hans eigin hlutverki sem ráðherra.“

    2. Er helsta stefna þessarar ríkisstjórnar að vera með fullt hús í áramótaskaupinu?

    3. Er ekki hægt að setja Ásthildi aftur í þetta embætti? Gummi er þessi boomer frændi sem er alveg úti á túni.

    4. Icelander2000TM on

      Þetta er út í hött.

      Við erum með sjálfstæðan ríkisfjölmiðil, sem er sjálfstæður af ástæðu.

    5. Johnny_bubblegum on

      Án gríns, það er möguleiki á að þessi stjórn muni springa út af einhverju sem flokkur fólksins gerir. Þau eru alveg hræðileg.

    Leave A Reply