> Nefnd á vegum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins samþykkti rétt í þessu tillögu um verndaraðgerðir vegna kísilmálms, sem framkvæmdastjórnin lagði fram í síðustu viku.
>
> Ísland og Noregur eru ekki undanþegin þessum aðgerðum, en stjórnvöld í ríkjunum tveimur hafa undanfarna mánuði barist gegn því að vera sett í þessa stöðu og bent á EES-samninginn og veru þeirra á innri markaðnum.
>
> Í [þessari](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2025-11-18-island-ekki-undanthegid-verndaradgerdum-esb-459146) fréttavakt munum við halda utanum framvindu dagsins og bera helstu viðbrögð við tíðindunum.
DipshitCaddy on
Hálfvitar
11MHz on
Við erum með tolla á ákveðnar vörur frá ESB. Af hverju ættu þeir ekki að gera sett tolla á okkur á móti?
Svo heldur fólk að Evrópusambandið eru svo góðir vinir okkar. Gleymum ekki 2008 þegar við fengum stígvélið í hrygginn frá þeim.
LatteLepjandiLoser on
Verður spennandi að sjá hvað Norðmenn gera. Held að tónninn verður annar ef þeir spila „reverse uno card“ á jarðgasinu, sem evrópa er algjörlega háð. Vonandi styðja þeir við okkur í þann slag, veit ekki alveg hvort við höfum nein sérstök spil á hendi annars.
Upbeat-Pen-1631 on
Nú hefði verið gott að vera inni
Historical_Tadpole on
Leiðinlegt að fá ekki undanþágu en það hefur verið okkar val að sitja ekki við borðið í Brussel og spila hlutverk valdalausra aukaleikara í Evrópupólitíkinni. ESB hefur ekki meinað okkur aðgang að sambandinu, algerlega okkar val að bíða á klapstól fyrir utan á ganginum á meðan hlutirnir eru ákveðnir.
Og nota bene þá erum bæði við og Noregur með fullt af verndartollum á vörur frá ESB, en á sama tíma ætlumst til þess að ESB komi ekki fram við okkur eins og við komum fram við ESB. Það hefur alveg verið tekið tillit til okkar en við eigum enga kröfu á því að ESB sé skylt að gera það. Þannig krafa heitir aðild.
Chimarvide on
Járnblendisiðnaðurinn mun nú loksins dafna á raforkusveltu Evrópska meginlandinu þökk sé þessum blessuðu verndartollum… á Evrópska framleiðslu.
Eins og staðan er í heiminum í dag er þetta ekki sérstaklega traustvekjandi ákvörðun hjá Evrópusambandinu. Hvernig stuðlar þessi ákvörðun að því að tryggja Evrópska framleiðslu á járnblendismálmum, ef það er yfirhöfuð markmiðið?
leppaludinn on
Vil aldrei heyra að við fáum allt það góða við ESB án þess að fá það slæma aftur. Þetta er sjálfskaparvíti og ekkert annað. Að betla fríverslun en vera svo með verndunarstefnu býður einfaldlega upp á það að hið sama gerist á móti.
gurglingquince on
Það væri gaman að vita hversu mörg co2 tonn þetta kostar í auknum útblæstri – evrópskar verksmiðjur hljóta að þurfa að framleiða meira en áður og þau ganga líklegast flest fyrir kolum, gasi eða olíu.
doddi on
Þetta er svo ógeðslegt, það hafa örugglega mörg hundruð íslensk framleiðslufyrirtæki farið á hausinn eftir EES samninginn, þar sem þau urðu ekki lengur samkeppnisfær við innflutar vörur. Svo í fyrsta skipti sem hallar á Evrópu í þessum samningi þá er þessu skellt á okkur.
Leave A Reply
Du musst angemeldet sein, um einen Kommentar abzugeben.
11 Kommentare
> Nefnd á vegum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins samþykkti rétt í þessu tillögu um verndaraðgerðir vegna kísilmálms, sem framkvæmdastjórnin lagði fram í síðustu viku.
>
> Ísland og Noregur eru ekki undanþegin þessum aðgerðum, en stjórnvöld í ríkjunum tveimur hafa undanfarna mánuði barist gegn því að vera sett í þessa stöðu og bent á EES-samninginn og veru þeirra á innri markaðnum.
>
> Í [þessari](https://www.ruv.is/frettir/innlent/2025-11-18-island-ekki-undanthegid-verndaradgerdum-esb-459146) fréttavakt munum við halda utanum framvindu dagsins og bera helstu viðbrögð við tíðindunum.
Hálfvitar
Við erum með tolla á ákveðnar vörur frá ESB. Af hverju ættu þeir ekki að gera sett tolla á okkur á móti?
Ísland í dag: https://imgflip.com/i/acgn5p