Es ist nicht hier, was meinst du?

https://www.visir.is/g/20252804454d/hundrad-thusund-i-hofud-stolinn-eru-ordin-ad-a-tjan-i-dag

Von Keyboard-Gremlin

5 Kommentare

  1. SnowballUnity on

    Veit ekki.

    En það virðist sem að allar hrakspárnar um það sem myndi gerast ef við tækjum upp evru hafi hvort eð er átt sér stað hérlendis þannig að maður er farinn að spá í hvort að það séu einhverjir hagsmunahópar að ríghalda í krónuna.

    Þessi vaxtamunur verður allavega að fara að minnka mikið og það hratt. Hvort það er hægt með krónuna hér er kannski spurning?

  2. Ef við ætlum að vera áfram með krónuna á öllum að vera skilt að gera upp í krónu.

    Gengur ekki að stærstu fyrirtæki landsins geri upp í evru/USD og búa þá við önnur vaxta/fjárhagsskilyrði en saklaus almenningur í landinu gerir sitt lifibrauð upp í íslenskum krónum og lifir við okurvexti.

  3. Johnny_bubblegum on

    Hvaða bull, það þarf enga evru til að vera með eðlilegt vaxtastig í landinu. Við erum fær um allt þetta sjálf og evran er ekki eitthvað töframeðal.

    Jájá, okkur hefur aldrei tekist að hafa hér varanlegt eðlilegt vaxtastig og okkur hefur aldrei tekist að hafa hér viðvarandi hóflega verðbólgu og okkur hefur aldrei tekist að vera með efnahag sem rokkar ekki milli góðæris og hruns…

    En þið evruköltistar látið alltaf eins og eftirtaldir hlutir séu eitthvað sem við getum ekki gert!

    Við getum þetta alveg þú svo við höfum aldrei gert það.

  4. SimonTerry22 on

    Ég er alveg til í annan gjaldmiðil en Krónuna. En Evrópusambandið? Ég er ekki svo viss um það. Evrópusambandið er komið niður í 65% af vergri landsframleiðslu Bandaríkjanna. Ég er ekki búinn að kynna mér þetta súper vel en þetta er risa ákvörðun sem fólk ætti að kynna sér mjög vel. Mér líst til dæmis ekkert á þessa kolefnisskatta, en þeir munu bara draga úr samkeppnishæfi Evrópska flugfélaga á meðan Bandarísk flugfélög græða. En svo þarf fólk alltaf að muna það að sama hvaða gjaldmiðill er hérna munum við alltaf búa á eyju í Norður Atlantshafi sem gerir allt dýrara. Evra gæti alveg létt lífið en ég held það yrði minna en sumir reikna með. Hawaí er í sama pakka, búa lengst frá öllu og þess vegna er allt miklu dýrara þar. Eins má ekki gleyma því að stjórnmálamenn eiga oft hagsmuni að gæta þegar það kemur að þessari umræðu, kannski búið að lofa þeim einhverjum störfum eða álíka. Ég væri til í annan gjaldmiðil en ég myndi vilja fá tvær skýrslur, eina sem væri unnin af evrópusinnum og svo aðra af fólki sem væri á móti því skýrsla sem væri unnin af „óháðum“ einstakling væri aldrei unnin af óháðum einstakling, sá einstaklingur myndi alltaf hafa einhverja skoðun á þessu.

  5. Stutturdreki on

    Evran ein og sér myndi bara í besta falli slá af gjaldeyris sveiflur í inn/útflutningi. Jú myndi líklega hjálpa við stöðuleika og við værum ekki að eyða miljónum/miljörðum á ári í að halda úti örmyntinni okkar en þannig séð ekki breyta öllu.

    Það sem okkur skortir er fjármálastjórnunin, regluverkið og samkeppnin.

    Það er algerlega galið hvað hagnaður bankanna er margfaldur á við önnur fyrirtæki á íslandi [https://heimildin.is/grein/25567/geta-bankarnir-laekkad-vexti/](https://heimildin.is/grein/25567/geta-bankarnir-laekkad-vexti/), greinilega lítil eiginleg samkeppni og þeir virðast hafa frjálsar hendur við að kreysta út peninga af viðskiptavinum sínum.

Leave A Reply