Share.

    10 Kommentare

    1. Á dauða mínum átti ég von? Mikið rætt um að hún myndi aldrei segja af sér man ég í síðasta þræði.

    2. rockingthehouse on

      Íslendingar eru svo rosalega veikir í svona skandala afsögnum. Það að hún fái annað starf á fati í dómsmálaráðuneytinu er hlægilegt á móti afsögnum sem maður heyri af erlendis. Sjá líka fyrrverandi forsætisráðherra sem segðu af sér en eiga enn í dag sæti á alþingi.

    3. Mjög hissa. Man varla eftir Íslending í háttsettri stöðu sem segir af sér og fyrnir sér þá öllum elli réttindum sem myndu tengjast starfinu. Líklegast að henni hafi ekki verið gefinn annar kostur en þetta er samt sem áður magnað og gott fordæmi að vissu leyti.

      Mikill skandall hún hafi samt bara verið „færð til“

    4. Þetta er svakalega vel unnið hjá dómsmálaráðherra. Hún passaði sig rosalega vel að tala ekki af sér í fjölmiðlum en sendi á sama tíma mjög skýr skilaboð um að hún vildi að Sigríður segði af sér, t.d. með því að gefa út að „engin niðurstaða“ hefði verið af fundi þeirra daginn eftir að þetta kom upp. Venjulega er talað um „gott samtal“ eða að „upplýsingar um stöðu mála“ eða eitthvað álíka loðið eftir svona fundi, þannig að þetta var mjög sérstakt orðaval. Svo gerir hún Sigmar út til að segja það sem hún má ekki segja. Öllum var ljóst að Sigríður hefði ekki stuðning.

      Sjallar eru ekki með pólitískt kapítal í að verja Sigríði eftir málþófið og eftir að Guðrún æðstisjalli klúðraði vararíkissaksónara-málinu með því að vera sammála því að hann væri vanhæfur en neita samt að reka hann. Eftir stendur Sigríður með engan stuðning frá flokknum sem lyfti henni í þessa stöðu.

      Listileg pólitík hjá Þorbjörgu dómsa.

    5. >“Sigríður Björk Guðjónsdóttir verður á fullum launum ríkislögreglustjóra í nýju starfi sem sérfræðingur hjá dómsmálaráðuneytinu.“

      Fær óskilgreinda málamyndastöðu hjá ríkinu á það sem ég giska á að séu mjög veglegum launum sem að tilheyra öðru embætti.

      þarna fór hádegismaturinn minn á gólfið..

    6. Ekki hægt að tala um að hún segi af sér ef það er með þeim skilyrðum að hún fái að halda laununum sínum í öðru starfi. Smá having her cake and eating it too að reyna að halda því fram að hún sé að taka einhverja ábyrgð.

      Held það sé bara betra að kasta henni út og borga henni þessi skömmustulaun hennar, vil ekkert hafa dómgreind hennar neinstaðar í kerfinu.

    Leave A Reply