>Samkvæmt heimildum Vísis er það frásögn mannanna að villan hafi uppgötvast fyrir tilviljun. Einn þeirra hafi meira að segja haft samband við viðskiptabanka sinn, bent á að við millifærslu hafi peningurinn ekki farið af reikningi sínum en ekki fengið afgerandi svör frá bankanum. Sólarhring eða tveimur síðar, þegar maðurinn millifærði aftur, endurtók leikurinn sig. Veikleikinn var enn til staðar.
>
> Lögregla er með fleiri en fimmmenningana sem sæta farbanni undir grun. Mennirnir fimm eru á þrítugs- og fertugsaldri og sá yngsti rétt yfir tvítugu. Bæði er um að ræða íslenska og erlenda ríkisborgara en flestir þeirra eru búsettir hér á landi og hafa verið í lengri tíma.
>
> Þeir virðast ekki vera með nokkrum hætti sérfróðir þegar kemur að tölvu- eða bankamálum enda bendir ekkert til þess að nokkur hökkun hafi átt sér stað. Þá segir Reiknistofa bankanna ekkert benda til þess að þeir hafi átt sér vitorðsmann innan bankans. Í augnablikinu virðist vera algjör tilviljun að mennirnir hafi uppgötvað villuna í bankakerfinu.
>
> Freistingin hefur vafalítið verið mikil að geta margfaldað fjárhagslega eign sína með þessum hætti. Aftur á móti má telja með ólíkindum að mennirnir hafi talið sig geta komist upp með glæpinn. Hver millifærsla innan bankakerfisins er merkt með nafni og kennitölu. Sporin eru því nokkuð augljós þótt óvíst sé hvort bankarnir nái að endurheimta allar fjögur hundruð milljónirnar.
>
>Samkvæmt heimildum Vísis keyptu sakborningarnir líka Ferrari-bíl, Teslu og þá að minnsta kosti tvo flotta bíla til viðbótar. Nokkrir þeirra nýttu nýfengna peninga til að veðja í spilavítum á netinu og þá mun einn þeirra hafa keypt rafmynt fyrir peningana.
dansk-reddit-er-lort on
Maður þarf virkilega að vera sérstök tegund af hálfvita til þess að halda að maður komist upp með svona. Héldu þessir menn virkilega að stofnun sem bókstaflega lifir af því að stússast með peninga taki ekki eftir því að það hverfi mörghundruð milljónir? Myndi skattstofan ekki taka eftir því líka, eða hvað?
Leave A Reply
Du musst angemeldet sein, um einen Kommentar abzugeben.
2 Kommentare