
tl;dr "Problem? Mir ist kein Problem bekannt. Nein, ich werde nichts tun, um dies zu verhindern oder gezielt nach Antworten oder Verbesserungen zu fragen."
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/10/29/thekkir_ekki_til_thess_ad_vagnar_hafi_verid_vanbuni/
Von GraceOfTheNorth
5 Kommentare
sögur segja að Alexandra sjálf hafi verið að alla nótt við að slípa dekkin, svo illir eru píratar
Það er staðreynd er að þetta virkaði betur á mínum unglingsárum, og það var líka snjór þá.
Strætó til varnar þá voru fleirri snjódagar þá, eða kannski var ég bara minni og allt virkaði því stærra – en ég sé varla lengur snjóhóla á bílastæðum og það að slást á þeim var aðal sportið hjá okkur þegar ég var barn.
Það mun alltaf vera kostnaðarsamt að vera tilbúinn fyrir svona snjóþunga, og það borgar sig ekki að vera undirbúinn fyrir atvik sem einungis gerast nokkrum sinnum á ári – en það er mikilvægt öryggisatriði að fólk geti tekið þá skynsömu ákvörðun að taka öryggan fararskjóta frekar en að fara út á bíl á sumardekkjum, og með biluð ljós, af því það er búið að skera Strætó svo harkalega niður í ræmur að enginn treystir sér að nota þjónustuna lengur.
Það á því ekki að nálgast þessa þjónustu sem lúxus sem þarf að keppa á opnum markaði og halda rekstrarkostnaði niðri – það á að líta á þessa þjónustu sem mikilvæga innviði, og öryggistæki bæði fyrir svona ástönd sem og bara öryggið sem fólk fær við að geta auðveldlega komist ferða sinna án þess að vera upp á aðra komin.
Hvernig voru þeir vanbúnir? Eru strætóar settir á vetrardekk á veturna? Er einhver sem veit það hér, ég er forvitinn
Þetta er jafn einfalt og hún segir; það eru ekki til peningar hjá apparatinu til að standa reiðubúið.
Það er vegna afla utan Strætó. Það eru öfl að reyna að fjársvelta, flekka orðspor, og loks einkavæða þetta.
Síðan koma áróðurstrúðar eins og 11MHz á spjallborð eins og þetta og segja hluti eins og „Fulltrúi Reykjavíkurborgar (sem er Pírati) styður þessar breytingar [að einkavæða Strætóleiðir]“ [þegar raunveruleikinn var sá](https://www.reddit.com/r/Iceland/comments/14hombl/str%C3%A6t%C3%B3_einkav%C3%A6ddur_a%C3%B0_innan_starfsf%C3%B3lk_uggandi_og/jpck5cc/) að Strætó var ekki að fá fjármunina til að standa undir rekstri þeirra, sem hún tók fram þegar hún kaus eins og hún kaus.
Reyndar merkilegt að lesa fréttina og sjá hvergi þessi orð sem beina tilvitnun í Alexöndru.
Eða er ég bara blindur?