Schöner Artikel von Þórði Snæ, lang, aber es lohnt sich.

    Der Artikel zeigt, dass, während die Rechten von „Steuererhöhungen der Linken“ reden, die tatsächliche Steuerbelastung der Arbeitnehmer gestiegen ist, während die Reichen Rabatte erhalten, die Kapitalertragssteuer gesenkt und ihr Eigenkapital um Hunderte Milliarden erhöht haben. Dabei geht es nicht um „Steuererhöhungen“, sondern darum, wer zahlt und wer davonkommt.

    Ich bin auch so froh zu sehen, dass er die Reformation ernst nimmt.

    Für diejenigen, die es nicht wissen: Die Korrektur bestand in der Streichung eines Teils der Wohnungsbaudarlehen in Höhe von 80 Milliarden ISK, die vor allem denjenigen zugute kamen, die vor dem Absturz Immobilien besaßen, in der Regel höheren Einkommensgruppen. Diejenigen, die ihr Zuhause verloren, bekamen jedoch nichts, obwohl sie einen Kredit, aber keine Wohnung hatten, und landeten meist auf dem Mietmarkt. Auch die Mieter profitierten nicht direkt, sondern spürten einen indirekten Effekt in Form höherer Mieten, die direkt in die Taschen der Begünstigten der Maßnahme flossen. Diejenigen, die ihre Wohnung behielten, erhielten einen gestärkten Status und konnten sogar mehr Immobilien zur Vermietung erwerben. Dies führte zu einer erhöhten Vermögensbildung, was Einzelpersonen und Investoren mit höherem Einkommen dazu ermutigte, problemlos mehr Immobilien zu erwerben. Die Mieter gingen jedoch leer aus.

    Ich glaube, das wird in der Diskussion oft vergessen

    https://www.thordursnaer.is/p/hva-hef-um-vi-geta-gert-vi-peningana-sem-sj-lfst-isflokkur-og-frams-kn-f-r-u-eim-efnu-ustu

    Von numix90

    Share.

    2 Kommentare

    1. shortdonjohn on

      Úff hvað ég á erfitt að vera sammála honum í þessum pistil þegar hann svoleiðis veður úr einu í annað. Vitnar í litlar eða jafnvel engar heimildir.
      Leiðist alveg sjúklega svona pistlar sem fullyrða ýmislegt en fela heimildirnar til að gera fólki erfiðara fyrir að ræða hlutina á gagnrýnan hátt.

      Villir fyrir lesendum með því að tala um 10% VS 90% þegar það er margfalt heilbrigðari umræða að hafa þann samanburð fjölbreyttari enda gefur það manni afsakaplega litla hugmynd um hvar samfélagið stendur að setja 90% þjóðarinnar undir einn hatt.

      Tekur fram ýmis mál sem mál SINNAR ríkisstjórnar þegar þetta var þingmál sem hafa verið í vinnslu jafnvel í nokkur ár hjá fyrri ríkisstjórn.

      Segir að kökusneið hinna ríkustu hafi stækkað á ný.
      Þetta er einfaldlega ekki rétt. Hafa eignir þeirra 5% ríkustu aukist í krónum talið ? Já það er alveg hárrétt.
      En hafa eignir þeirra ríkustu aukist umfram eignir hinna 95%
      Nei. Hlutfallið hefur lækkað frá árinu 2011 úr 50.9% af heildareignum landsmanna niður í 34.7% af heildareignum landsmanna. Það þýðir að gjáin á milli þeirra ríkustu og almennings hefur bókstaflega minnkað, og minnkað umtalsvert..

      Vill að það sé metið mögulegt söluvirði hlutabréfa en ekki á nafnvirði. Hann ætti að vita af hverju það er gríðarlega slæm hugmynd að gera það. Ættum við kannski að skattleggja hækkun fasteignaverðs hvort sem eignin er seld eða ekki ?

      Tekur fram að bankaskattur var lækkaður. Síðast er ég gáði þá erum við með einn hæsta bænkaskatt í heiminum þrátt fyrir lækkunina. Er það líka löngu vitað að þeir sem greiða þennan bankaskatt eru fyrst og fremst almenningur.

      Tekur fram að kaupmáttur ungs fólks hafi dregist verulega saman. Hvaða heimildir eru fyrir því ?
      Er auðvitað sammála því að það er gríðarlega erfitt að kaupa fasteign í dag og mun seint reyna að afsaka það ástand. En kaupmáttur landsmanna hefur hækkað gott sem hvert einasta ár frá síðasta hruni. Og verið einna mest af öllum evrópuþjóðum.

      Tekur fram að skattekjur af ökutækjum og eldsneyti hafa minnkað. En gleymir að nefna að skattprósentan af þessu öllu saman hefur bókstaflega hækkað. Þetta var vitað fyrirfram að myndi gerast því það þurfti að búa til hvata fyrir almenning að færa sig yfir á rafbílana. Þegar núverandi ríkisstjórn var í stjórnarandstæðu þá mótmæltu þau kílómetragjaldinu en í dag þá fanga þau því eins og þetta sé eitthvað sem þau fundu uppá en vonda hægrið hafi staðið í vegi fyrir. Bara verið að kasta ryki í augu fólks með því hvernig hann orðar þetta og engan vegin kafa nógu djúpt í málið.

      Hann segir að nýting séreignarsparnaðar inná húsnæðislán nýtist eingöngu þeim tekjuefstu. Bíddu hvað er hann að reykja eiginlega ? Þetta er framtak sem hefur skilað risastórum ávinningi fyrir ALLA fasteignaeigendur og þá sérstaklega fyrstu kaupendur sem geta bætt við afborganir sínar í upphafi lántöku og fjárfest stórfenglega til framtíðar. Það má líka nýta þennan séreignarsparnað sem hluta af fyrstu innborgun.
      Hann nefnir 90 milljarða tap á skattekjum sem þýðir að hann hefði viljað að þetta hefði aldrei átt að vera til staðar.

      „Nú stendur til að láta almenna skattfrjálsa nýtingu á séreignarsparnaði til að greiða niður höfuðstól húsnæðislána falla niður um komandi áramót og móta nýjar leiðir í opinberum húsnæðisstuðningi sem styðja við þá sem þurfa virkilega á stuðningi að halda, ekki bæta við eignarmyndun þess tæpa þriðjungs þjóðarinnar sem á fyrir mest.“
      Enn og aftur vill ég taka fram að það er mjög stutt í áramót og það er ekki vitað hvernig þessi stórfenglegi stuðningur mun virka eða yfirhöfuð eiga sér stað.

      Gott er svo að taka fram að ég er svo fjarri því að vera ánægður með fyrri ríkisstjórn. Tel innviðaskuldina vera skandal. Hvernig farið var með fjármál ríkissins, ýmis stefnumál og lengi má telja.
      Þessi pistill hans Þórðar er hinsvegar bara alls ekki nógu góður og mjög fjarri því að mínu mati.

    2. GraceOfTheNorth on

      Bættar vegasamgöngur á þeim köflum þar sem banaslys eru algengust.

    Leave A Reply