Share.

    5 Kommentare

    1. >Það kom hreppsnefnd Tjörneshrepps mjög á óvart þegar þeim barst boð um 248 milljóna króna greiðslu vegna fólksfækkunar. Hreppurinn kannast ekki við svo mikla fólksfækkun, óskaði ekki eftir framlagi og afþakkaði það.

    2. Ha… má þetta bara?!

      Annars er þetta ágætis dæmi um að stundum er hið opiðbera einstaklega óskilvirkt, eins og kerfið sem skilaði þeirri niðurstöðu að Tjörneshreppur þyrfti þetta framlag, og stundum er það fullkomnlega skilvirkt, eins og Tjörneshreppur sjálfur, og sinnir starfi sínu án frekari kostnaðar eða væntinga til gróða af þeirri starfssemi.

      Það er ágætis veganesti í stjórnmálaumræðuna þar sem margir leikmenn leyfa sér að fullyrða að einstaka tilfelli hljóti að vera algild sísanna þegar það hentar hugmyndarfræðilegum vonum okkar.

    3. Smá samhengi til gamans, styrkurinn er hærri en skráðar eignir sveitarfélagsins, ársreikningur Tjörneshrepps 2024:

      Tekjur 81.941.118
      Gjöld 29.515.858
      Rekstrarniðurstaða af reglulegri starfsemi 49.631.716
      Óvenjulegur kostnaður 3.670.733
      Rekstrarniðurstaða 45.960.983

      Eignir 169.324.187
      Skuldir 199.871

      (https://nytt.tjorneshreppur.is/wp-content/uploads/2025/10/Fundarger%C3%B0-19.-apr%C3%ADl-2025.pdf)

      Þótt mér þyki áhugavert að neita styrknum þá getur þetta varla talist annað en vanræksla að neita lögmætum styrk. Má bera saman við að ráðherra neiti að taka á móti styrk frá Evrópusambandinu af því hann (eða flokkur hans) er á móti ESB.

    Leave A Reply