Share.

    1 Kommentar

    1. OddgeirPall on

      Mín skilaboð til þeirra sem hafa verið að gagnrýna þessa styrki undanfarið.

      Skv fjárlögum 2026 mun *allt* starf Utanríkisráðuneytisins kosta ca 38 milljarða á árinu, eða 2.5% af kostnaði ríkisins, og þar af fer minnihluti af því í þróunar/aðstoðarstarf.

      Berum það saman við tvö önnur ráðuneyti, sem eru vissulega að fjárfesta í Íslendingum og „vandamálunum hér heima“.

      Félags- og húsnæðismála ráðueytið: 390 milljarðar, 25,8% af heild
      Heilbrigðisráðuneytið: 418 milljarðar, 27,7% af heild

      Ég er alveg tilbúinn að taka rökræður um það hversu mikið eigi að fara í alþjóðlega hjálparstarfsemi, eða hvort einstaka verkefni/styrkir eigi rétt á sér.

      En ef útgangspunkturinn er „Við eigum ekki að setja peninga í svona verkefni á meðan það eru vandamál hér heima fyrir“ þá er það orðin umræða um hugmyndafræðilega breytingu á því hvernig við sem þjóð störfum, hversu mikið við gefum til baka til alþjóðakerfis sem hjálpaði okkur úr torfkofunum, ekki bara umræða um „forgangsröðun fjármála“.

      Ef þú vilt taka þá umræðu og tala fyrir breyttri hugmyndafræði þá er ekkert að því, taktu bara þá umræðu. En gerðu það þá með kassann út í staðin fyrir að vera að fela þig á bakvið „forgangsröðun fjármála“ þegar fólk svarar þér með hugmyndafræðilegum rökum og punktum.

    Leave A Reply