Kurur bei einem Spiele in Europa Staff: „Viele isländische Mitarbeiter auf verfügbar“ – Rúv.is

    https://www.ruv.is/frettir/innlent/2025-10-01-kurr-a-starfsmannafundi-play-europe-nog-af-islensku-starfsfolki-a-lausu-454947

    Von birkir

    Share.

    1 Kommentar

    1. >„Við munum reyna að flytja þessar vélar hraðar núna,“ sagði Carmen Cuschieri, yfirmaður flugþjóna hjá Play Europe, á lokuðum fundi með starfsmönnum Play Europe í gær en **fréttastofa hefur upptöku af fundinum undir höndum.**

      >Á fundinum reyna Cuschieri og Halldór Guðfinnsson, flugrekstrarstjóri Play og Play Europe, að sannfæra starfsfólkið um að Play Europe geti starfað óhindrað þrátt fyrir fall íslenska móðurfélagsins. „Fly Play Europe er algjörlega aðskilið félag,“ segir Cuschieri.
      >
      > Þónokkrar efasemdir koma fram meðal starfsmanna á fundinum. Einn segir til dæmis að hver lygin hafi rekið aðra hjá félaginu. Áformin séu ekki traustvekjandi þegar engin sönnun hafi fengist.
      >
      > Annar spyr hvaðan fjármagnið komi og hvort félagið hafi yfir nægum starfsmönnum að skipa til að geta tekið að sér aukin verkefni.
      >
      > Halldór fullvissar hann um að svo sé. „Fjármögnunin er tryggð,“ segir hann en segist ekki geta farið nánar út í það vegna viðskiptahagsmuna. **Hann væri sjálfur ekki að vinna fyrir Play Europe ef það væri minnsti vafi á því í hans huga að nægur peningur væri til staðar.**
      >
      > Hvað varðar mönnunun svarar hann, á ensku: **„Kæri vinur, það er nóg af íslensku starfsfólki á lausu. Orðum það bara þannig.“**

    Leave A Reply