Share.

    26 Kommentare

    1. Einn1Tveir2 on

      Jæks, það er nú leiðilegt. Hver er með hugmynd af nýju nafni á næsta íslenska lággjaldaflugfélagi? kannski volcanoair? getum tekið rauðu play vélarnar og sett svona firedecal dæmi á þær.

    2. lol.. er ekki svona vika síðan þeir sögðu að þeir væru allsekki að hætta ?

    3. Johnny_bubblegum on

      Óska félagsmönnum Birtu til hamingju með að hafa dælt 1.300.000.000kr í fyrirtækið sem er nú orðið að 0kr.

      Öllum fjárfestingum fylgir áhætta og þar af leiðandi tap en kommon þetta var svo augljóslega dauðadæmt frá upphafi.

    4. Lagaumhverfið kringum gjaldþrot flugfélaga er algerlega vonlaust. Í öllum öðrum fyrirtækjarekstri af þessari stærðargráðu er raunverulegur möguleiki á að halda áfram rekstri og viðhalda veltu, frekar en að frysta bara allt heila klabbið og að flug sem eru fullseld séu bara ekki flogin.

    5. Pain_adjacent_Ice on

      Var þetta ekki fyrirséð? Get ekki sagt að ég sé hissa, því miður…

    6. dansk-reddit-er-lort on

      FML.. Er með bókað flug til íslands eftir rúmar tvær vikur með Play, en ætti samt að vera tryggður fyrir þessu. En þetta verður eflaust gaman að díla við.

    7. deschampsiacespitosa on

      Bara ef það hefðu verið einhver fordæmi fyrir því að svona rekstrarmódel ætti erfitt uppdráttar á íslenskum flugmarkaði, þá hefði kannski verið hægt að sjá þetta fyrir og gera einhverjar ráðstafanir. /k

      Breytingar: Stafsetning

    8. Sem betur fer er enn slatti af lággjaldaflugfélögum sem flýgur héðan og hingað

    9. Núna er fréttin að tala um „Fjölda strandaglópa erlendis“. Ætli það þurfi ekki inngrip eins og þegar Wow fór á hausinn. Man ekki hvort það var Ríkið eða Icelandair eða bæði.

    10. Var búinn að bíða mörg ár eftir að geta sagt þennan lélega brandara en…

      Stop

    11. Ferðast einstaka sinnum til útlanda vegna vinnu og hef lagt áherslu á að ef kostur er sé keypt far með Icelandair, eftir slæma reynslu af Iceland Express og WOW á sínum tíma varðandi aflýsingu flugferða. Aldrei farið með Play, brennt barn forðast eldana.

    12. Ég bara næ ekki hvers vegna fólk var ennþá að kaupa miða með play á þessu ári, þetta hefur legið í loftinu í marga mánuði.

    13. Þetta var ekki skemmtilegt að sjá á Stansted flugvelli á leið heim.. Kom go to gate og allt svo þegar við mættum að hliðinu var komið canceled. Þá var farið beint í símann áður en allir aðrir gerðu það sama og keypt flug heim með icelandair

    14. Spái því að Hopp verði með næsta flugfélag. Líka svona nafn sem passar við.

    Leave A Reply