Share.

    16 Kommentare

    1. Já. Og ekki vegna einhverra hamfara, eða innrásar eða neitt slíkt: Þeir eru viljandi að bora göt í bátinn. Og þannig fólki er ekki bjargandi.

    2. kemur í ljós seint á næsta ári.
      Ef að valdajafnvægið breytist ekki í þingkosningunum, eða að þeim verði jafnvel frestað, að þá já.

    3. GraceOfTheNorth on

      Já bandarískt samfélag er komið langleiðina inn í alræði.

      Verst er að við erum líklega bara að byrja að fá nasaþefinn af því hvernig upplýsingar um fólk eru notaðar til að hanka óvini ríkisins.

    4. rockingthehouse on

      Versta við þetta er að Jimmy Kimmel gerði ekki einu sinni grín af morðinu né Charlie Kirk, hann bókstaflega benti bara á það að Trump virðist vera drull um CK og spilaði myndbrot af því þegar trump svaraði „Ég samhryggist þér varðandi vin þinn Charlie Kirk. Má ég spyrja hvernig þú ert að höndla þetta?“ með því [að breyta umræðunni strax í stóra fína veislusalinn sinn](https://www.independent.co.uk/arts-entertainment/tv/news/jimmy-kimmel-trump-charlie-kirk-ballroom-b2827427.html). Svo kvarta íhaldsmenn yfir því að vinstrisinnað fólk er ekki að syrgja CK nógu vel. Trump er drullusama. Veislusalurinn skiptir meira máli. En enginn má benda á það, því þá missiru vinnuna. Þetta er brjálæði.

    5. Já, og eins og Jerswar sagði, þá er þetta algjörlega heimatilbúið hjá þeim og hefði léttilega verið hægt að koma í veg fyrir þetta. Það versta er að sjá einstaka aðila hérna á Íslandi vera að reyna að flytja þessi heimatilbúnu vandamál hingað inn.

    6. Já, ég sé fyrir mér að ég muni þakka sjálfum mér fyrir að byrja að læra kínversku fyrst að allur áhugi minn til að vinna í BNA er búinn að fuðra upp.

    7. Trump og félagar eru að reyna hvað þau geta til að þrýsta á ofbeldi frá vinstri vængnum til að búa til frekari réttlætingu á hreinsunum. Fasistar þurfa alltaf að upphefja sig sem fórnarlömb til þess að réttlæta fyrirfram ákveðin voðaverk. Svona í bland við að leiða huga almennings frá Epstein skjölunum og yfirvofandi kreppu.

    Leave A Reply