
Jetzt werden alle hier als ältere Menschen von Nazis in der Vorderseite der Schwierigkeiten bezeichnet, weil sie bewiesen haben, dass sie nicht Nazi sind!
https://www.visir.is/g/20252760862d/-ef-vid-vaerum-nas-istar-tha-vaerum-vid-ekki-ad-skipta-um-kross-
Von Johnny_bubblegum
7 Kommentare
Þetta eru hákristnir margdæmdir ofbeldismenn.
Þegar svona hópar nota krossa hefur það ekkert að gera með trúrækni þeirra heldur eru þeir notaðir sem tákn fyrir andstöðu vestrænnar menningar við aðra menningarheima og yfirburði hennar.
Þeim fannst slæmt að vera kallaðir nasistar á meðan þeir haga sér eins og nasistar og tala eins og nasistar og völdu sér þekkt nasistamerki. Svo þeir breyttu bara merkinu en hvorki orðum sínum né hegðun.
Mér finnst leiðinlegt samt að þeir ætli að tengja „venjulega“ kirkjukrossinn við íslenska nýnanista, það væri mjög leiðinlegt fyrir alvöru góðhjartað kristið fólk sem þykir vænt um krossinn sinn.
Newsflash: Þeir eru ekki nasistar vegna þess að þeir notuðu hinn krossinn. Þeir eru nasistar vegna þess að þeir eru nasistar. Þeim er aldrei að fara að takast að fela það þótt þeir breyti krossinum.
Djöfull er þetta hrútheimskt lið 🤣
Kassinn í kringum myndina framan á bolnum segir mér að þetta sé líklegast pantað af Temu. Á ekki að styðja við íslenska bolaframleiðendur?
Annars liggja pípulagnir (pipeline) á milli öfgahægrisins og kristni í dag – þó ekki þeirrar kristni sem er t.d iðkuð í þjóðkirkunni.
„Hann vill alls ekki meina að hópurinn hafi sótt í hugarheim nasista með krossavali sínu, hér sé ekki um járnkrossinn að ræða, heldur templarakrossinn sem musterisriddarar báru í krossferðum forðum daga.“
Þetta er svona eins og að mótmæla því að vera tekinn fyrir ölvunarakstur vegna þess að þú ert alls ekki fullur, heldur freðinn.
Segðu hvað sem þú vilt en það er gott að vita að það er almenn skömm fyrir að vera nasisti
Ég veit ekki hvað það segir um mig að ég ergist allra mest yfir því að þeir notuðu ekki gegnsætt PNG/SVG í prentun á nýja fína tótallí ónasistalegu merki sínu