Share.

    6 Kommentare

    1. ultr4violence on

      „skoðanakannanir sýna að Sigurður Ingi mislas með öllu vilja kjósenda í því máli.“ Veit ekki hvort hann hafi mislesið neitt. Hafi bara veðjað á gullfiskaminni kjósenda, en lengra minni sjávargreifa þegar kemur að kosningasjóðum fyrir næsta kjörtímabil.

    2. AirbreathingDragon on

      Hvorugt þeirra eru sérlega spennandi kostur fyrir leiðtoga, Halla kann þó að minnsta kosti að lesa rýmið og hefur eitthvað gravitas. Ólíkt henni Lilju sem gat ekki einu sinni komið sér sjálfri inn á þing, hvernig ætlast hún þá til að halda flokkinum á lífi?

      Halla sigrar: Tækifæri fyrir Framsókn til að ná aftur fótfestu seinna.

      Lilja sigrar: Flokkurinn deyr út.

    3. Þetta hljómar langsótt hjá DV – þarna er einhver blaðamaður kannski meira að giska frekar en að þetta byggi á e-m samtölum við innanbúðarfólk. Sigurður Ingi virðist í sjálfu sér ekki á útleið, amk ekki á næstu mánuðunum, og í rauninni ætti flokkurinn kannski ekkert að vera að spá í formannsskiptum fyrr en líður á kjörtímabilið og styttra er í næstu kosningar.

    4. StefanOrvarSigmundss on

      Það væri merkilegt ef formaður flokksins yrði einhver sem nýgenginn er í flokkinn. Kannski er það það sem þarf á þessari stundu.

    Leave A Reply