
Boom. Was wird als nächstes passieren.
Ich denke, das Schlechte daran ist, dass D oder M das nächste Mal die Kontrolle über diese Bestimmung anwenden.
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/07/11/forseti_thingsins_virkjar_kjarnorkuakvaedid/
Von StefanRagnarsson
23 Kommentare
Mogginn strax farinn í stríðsham lol
Lýðræðið sigraði loks og íhaldið froðufellir.
Tvöfaldur sigur.
Það er mjög langt síðan ég fann fyrir stolti yfir ríkisstjórn. Hvað er þessi tilfinning?
Fyrsta sinn á stuttu ævinni minni sem ég fylgist með Alþingisútsendingunni í beinni. Eru sjálfstæðismenn alltaf að væla svona mikið eða bara þegar tilraun þeirra til valdaráns er svipt?
Virkið saltnámurnar, það verður nóg af uppskeru frá Morgunblaðinu.
Já það er einmitt það að þetta setur ákveðið fordæmi en ég vona að þessu verði bara beitt í svipuðum aðstöðum og eru nú uppi, ég held samt að þetta hafi verið eini möguleikinn og líklegast það rétta að gera í stöðunni. Sama hvað fólki finnst um þetta mál þá er það bara þannig að meirihlutinn á þinginu vill þetta og minnihlutinn vill það ekki, einhverntímann verður meirihlutinn að fá sínu framgengt.
> Það slæma við þetta held ég að sé að næst þegar D eða M komast í stjórn þá eiga þeir eftir að beita þessu ákvæði ítrekað.
Já. Duh. Og það verður alveg pottþétt ekki samið um þinglok heldur. Bara keyrt áfram inn í sumar.
Finnst þetta mikil skammsýni hjá núverandi stjórnarflokkum, enda eru þeir oftar í minnihluta en meirihluta.
Ef ríkisstjórnin hefur fullan stuðning fólksins í landinu, þá er þetta rétta ákvörðunin.
Ef að ríkisstjórnin gerir þetta þegar spilin snúa akkúrat öfugt, þá er það á okkur fólkið í landinu komið að gera allt brjálað.
Þessi aðgerð er rétta aðgerðin því stjórnarandstaðan er að kæfa lýðræðið með bulli. Hver okkar sem hefur horft á útsendingar frá þingi hefur orðið vitni af því að fólk haldi þingi í gíslingu á meðan það talar um fullkomnlega „random“ hluti – í gær hlustaði ég á mann úr Miðflokkinum tala um Ingu Snæland dansandi eggjandi dansa frekar en að svara málefnalega spurningu um framferði varaforseta daginn áður. Á öllum siðmenntuðum samkomum hefði þessi maður einfaldlega sleppt því að taka tíma af öðrum og tefja meðferð mála.
Það að nýta þessa grein til að selja sjálfstæði Íslands til Bandaríkjanna þegar 80% landsins eru því mótfallinn væri einnig aðför að lýðræðinu, nema nú væri aðförin gerð af hálfu sitjandi ríkisstjórnar og því undir lýðnum komið að veita viðnám.
Það er ekki allt sem stjórnarandstaða gerir sjálfkrafa til varnar lýðræði, og það er ekki allt sem ríkið gerir sjálfkrafa valdtaka og einræði – hlutirni hafa meiri núans og núansin hér snýst um hvað lýðurinn styður og sá stuðningur er **afgerandi**.
Já!!
þetta var því miður orðið það eina í stöðunni.
Veit ekki með hvort þau eigi eftir að beita þessu ákvæði ítrekað, fordæmið er ennþá það að stjórnarandstaðan fékk að tefja vikum saman, það væri allt öðruvísi ef þessu hefði verið beitt mun fyrr, eða ef meirihlutinn ætlaði að afgreiða fjölda mála með sama hætti í einu. Þetta var líka vel gert hjá ríkisstjórninni að leyfa stjórnarandstöðunni að tala og sýna sitt rétta andlit, held það vefjist ekki fyrir neinum hvaða hagsmuni D og M setja raunverulega á oddinn og eru tilbúin að berjast í rauðan dauðann fyrir.
Þetta var það eina í stöðunni.
Maður verður náttúrlega að spyrja sig hver tilgangur ákvæðisins er. Þegar minnihluturinn er sjálfur búinn að viðurkenna að þetta er ekkert nema málþóf, hlýtur málið að teljast útrætt. Væri ákvæðinu beytt án þess að það væri fyllilega útrætt væri þetta allt önnur staða að mínu máli.
Verði því beitt frjálslegra í framtíðinni þá einfaldlega þarf bara að breyta þessu ákvæði og setja eðlilegar skorður á ræðufjölda/tíma.
Held að þessir flokkar myndu beita því ítrekað hvað sem þessu máli líður, sætu þeir í ríkisstjórn. Það er augljóst að þessir flokkar eru að færa sig sífellt lengra í átt að hægri popúlisma þar sem það er sjónarspilið sem gildir og að styðja sitt lið. Það eru Trump-áhrifin og samfélagsmiðlaáhrifin.
Mikið rosalega er ég orðin leið á þessum siðblindu eiginhagsmunaseggjum í Sjálfstæðisflokknum og Miðflokknum.
>“Kristrún Frostadóttir er fyrsti forsætisráðherrann í 66 ár sem mistekst að miðla málum á Alþingi. Þetta er alvarlegur áfellisdómur fyrir forsætisráðherra, hennar ríkisstjórn og virðingu þeirra fyrir Alþingi Íslendinga.“
-Svona lauk Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins ræðu “
svona tala bara búllís og sósíopatar.
fokking halelúja.
Ég hefði verið fyrir meiri vonbrigðum en ég gæti lýst, hefðu þau lagt fram „SFS frumvarp í lokuðu umslagi 2.0“
[Mbl eru búnir að skrifa aðeins um málið, og auðvitað minnast þeir ekki orði á af hverju kjarnorkuákvæðinu er beitt í þetta skiptið](https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/07/11/forseti_thingsins_virkjar_kjarnorkuakvaedid/).
Orð hafa ótrúlegan mátt enda kemur ekki á óvart að mbl kalli þetta kjarnorkuákvæði en ekki óþægukrakkaákvæði.
Svo er auðvitað ömurlegt að sjá hvernig minnihlutinn stundar sömu taktík og einstaklingur sem beitir maka sinni andlegu ofbeldi. Allt sem ég geri er þér að kenna og þú ert ömurlegur og svo framvegis.
Búmm!
Frábært að þetta málþóf hætti.
Finnst þetta samt pólitísk mistök, á meðan Hildur Sverrisdóttir hættir að taka að sér skipulag þingfunda í óþökk forseta Alþingis hefði verið gáfulegast bara að leyfa ekki stjórnarandstöðunni að skipta í varamenn á meðan málþófið er í gangi, leyfa þeim að tala í allt sumar og verða sér til enn meiri skammar. Síðan beita 71 grein viku fyrir næsta þing og koma málinu í gegn og öllu öðru sem þarf að klárast fyrir næsta þing.
Ég held að með þessari notkun mun 71 grein þurfa að vera beitt mjög reglulega á þessu þingi, einfaldlega afþví xD, xF og xM kunna ekki að skammast sín og þurfa að reyna að láta stjórnina líta út sem vandamálið.
Það er enginn nema stjórnarandstaðan sem er að niðurlægja þingið. Þau fengu að halda þinginu í gíslingu vikum saman svo fordæmið er ennþá að þau fái að hafa áhrif ef þau eru bara málefnaleg. En vandamálið eins og hjá stjórnarandstöðunni í borginni er að þau geta bara ekki verið málefnaleg.
Þetta er öllum augljóst
Ég er mjög ánægður með Guðrúnu og hennar fólk í sjálfstæðisflokknum og aðra flokka í minnihlutanum. Þetta mál er búið að taka svo mikið fylgi af þeim að það er frábært að sjá samstöðu meðal almennings í landinu. Besta er að þau sjá það ekki sjálf að þau eru að gera sig að fífli.
Áhrif Trumpisma farin að verða ansi áberandi hér á landi. Rödd minnihlutans grafin og valdagræðgin sett í fyrirrúm.
Fyrri ríkisstjórnir hafa alltaf gefið eftir þegar minnihlutinn setur fótinn niður.
Völd spilla. Algjör völd spilla algjörlega.
Mjög fyndið hvernig allir í stjórnarandstöðunni eru að tala um að þetta sé gróf aðför að lýðræðinu, en á sama tíma er hellingur af fólki í andstöðunni sem hreinlega nennti ekki að mæta.