Ich habe eine Grafation dessen, was ich um das Verhalten der israelischen Armee in Gaza kümmere. Aber hier, um Männer aus einem Nachtclub zu evakuieren, weil sie Israel sind, die sich in einem Zeitungsinterview freut und sie mit Ratten verglichen, ist einfach zu viel Schulbuchbeispiel für Anti -Semitismus, um dafür die Klappe zu halten.

    Die Rechtfertigung scheint zu sein, dass es in Israel eine militärische Pflicht gibt, die Männer Soldaten sein müssen und als solche von großer Bedeutung gewesen sein müssen. Aber die Grenze zwischen gerechtfertigter Kritik und etwas, der mit Hass liegt, liegt ich, ich denke, Sir, so parallel zu einer solchen Lösung und den Ideen des Gewissens.

    https://mannlif.is/greinar/arni-viljar-rak-israelska-hermenn-af-skemmtistad-i-reykjavik/

    Von mineralwatermostly

    Share.

    8 Kommentare

    1. Þessi einstaklingur virðist hreinræktaður gyðingahatari.

      Maður notar ekki þessa dýrasamlíkingu óvart.

    2. Icelandicparkourguy on

      Ég ætla að skjóta á að hann sé týpan sem gerðir story og tvitterfærslu líka til að klappa sjálfum sér á bakið

    3. Það er ekki gyðingahatur að vilja ekki fá stríðsglæpamenn inn á veitingastaðinn sinn.
      Það er hinsvegar gyðingahatur að reyna endalaust að setja samasemmerki milli gyðinga og Ísraelsríkis. Ísraelsmenn fara ekki með eitthvað umboð allra gyðinga í heiminum.
      Þessum mönnum var ekki vísað frá vegna þess að þeir eru gyðingar. Þeim var vísað frá vegna þess að þeir eru frá landi sem er að fremja þjóðarmorð og hafa sennilega tekið þátt í því sjálfir þegar þeir gegndu herskyldu.

    4. AngryVolcano on

      Ef þeim var vísað út vegna þjóðernis síns, hvernig er það þá gyðingahatur?

      Veistu ekki að það er einmitt eitt form af gyðingaandúð að setja samasemmerki milli Ísraels og Gyðinga? Þetta tvennt er ekki það sama.

    5. Þú þarft ekkert að vera þáttakandi í þjóðarmorði ef þú býrð í Ísrael, þér er frjálst að neita ef siðferði þitt segir þér annað. Að því sögðu er bara ogguponkupínuponnsulítið hlutfall Ísraela sem neita herskyldu, enda liggur við því fangelsisvist.

      Ég get ekki séð að Síónistar ættu að vera samþykktir í Íslensku samfélagi. Gyðingar, sure, eins og hver annar trúarflokkur og kynflokkur. En hart nei við Síónistum vegna þess að Síónistum finnst ásættanlegt og nauðsynlegt að þjóðernishreinsa og upphalda einn stífasta rasisma sem ég veit um.

    6. prumpusniffari on

      Maður hefur því miður séð slatta af þessu í sambandi við þjóðernishreinsanirnar á Gaza og Vesturbakkanum.

      Bæði er fullt af raunverulegum gyðingahöturum sem nota þetta sem tækifæri og skotfæri, og svo er hitt að það er slatt af ambient gyðingaandúð í samfélaginu sem fólk áttar sig ekki á sem stigmagnast út af þessu.

      Ég var t.d að vinna með manni sem var í alla staði hinn viðkunnalegasti og skynsami, sem tjáði upp úr þurru þá skoðun að hann furði sig á því að „fólk sé ennþá gyðingar“ í ljósi þess sem er í gangi í Gaza, og að gott fólk „hljóti að vilja sverja þetta af sér“. Hann furðaði sig á því þegar ég bað hann að skoða það hvort það væri ekki ómeðvituð gyðingaandúð í þessu viðhorfi.

      Og það er mjög, mjög auðvelt fyrir gyðingahatara að beina réttlætanlegri reiði fólks gegn Ísrael út í gyðingahatur, sérstaklega þar sem meðal manneskjan er ekkert ofboðslega meðvituð um sögu og eðli gyðingahaturs í heiminum.

      Ef ég væri að reka skemmtistað og það mættu á hann menn sem væru virkir meðlimir í IDF (sem ekkert bendir til að þessir menn voru) þá þætti mér ekki óréttlætanlegt að gera þeim ljóst að þeir væru ekki velkomnir, enda er þessi her í miðju kafi við þjóðernishreinsanir. Ekkert öðruvísi en að mér þætti fullkomlega réttlætanlegt að reka Rússneska hermenn í fríi (ekki það að þeir fái frí) út af skemmtistað. En í guðana bænum ekki kalla fólk „rottur“ út frá því hvaðan þau eru. Það er óforkastanlegt, og í þessu samhengi er það gyðingahatur.

      Væri afskaplega til í að allir myndu taka djúpt andann og minna sig á að Ísrael er ekki gyðingar og gyðingar eru ekki Ísrael og það er ekki einu sinni hægt að ganga út frá því sem vísu að Ísraelar styðji þetta (þó þeir gera það vissulega mjög margir).

    7. Johnny_bubblegum on

      Jú þetta er gyðingahatur. Allt slæmt og óþægilegt sem kemur fyrir Ísrael og Ísraela vegna þjóðarmorða landsins er gyðingahatur.

      Ef þú ert ekki viss um hvort eitthvað er gyðingahatur þá er það gyðingahatur líka.

    8. Polemarcher on

      Það er herskylda í Ísrael sure, svo þú ættir ekki að setja alla Ísraela í sama hóp, enda líklegt að einhverjir Ísraelar styðji ekki hvað þjóðin sín er að gera og hafa ef til vill einhverjar eftirsjár af sínu framlagi til IDF. En það er annað ef þú ert að flagga því með stolti að þú sért Ísraeli án þess að það komi fram að þú styðjir ekki þjóðarmorð.. og svo heimta það sé gyðingahatur þegar þér er úthýst því fólk vill mjög eðlilega ekkert með þjóðarmorðingja að gera.

    Leave A Reply