Share.

    7 Kommentare

    1. Kareem – Link – Baggio – Anóra – Vava – Star
      Kareem – Link – Baggio – Anóru – Vövu – Star
      Kareemi – Linki -Baggio – Anóru – Vövu – Stari
      Kareems – Links -Baggiós – Anóru – Vövu – Stara

      Er ég með þetta rétt?

    2. Both_Bumblebee_7529 on

      Sko, ég hef í sjálfu sér ekkert á móti þessum nöfnum, en þegar íslenska mannanafnanefndin er farin að samþykkja nöfn sem uppfylla ekki reglur hennar (sbr. íslenskan rithátt) bara af því nöfnin eru skrifuð þannig erlendis, en mjög íslenskuleg nöfn komast ekki í gegn af óljósum ástæðum (t.d. var Heli samþykkt en Hel ekki) þá held ég að tilgangi hennar sé loksins lokið.

    3. Berserkurinn on

      Allt heppilegri nöfn en t.d það að heita Guðríður og vera dóttir prestsins.

    4. Enn ég sem hélt að mannanafnanefnd væri svo hræðilega ströng og bannaði allt? Allir sjallarnir eru búnir að vera að segja mér það í 20 ár!

      Mætti halda miðað við þessa frétt að reglurnar séu mjög víðar og lítið í þyngjandi. Jafnvel að eina krafan sé að nafnið sé á íslenski og svo jú að það sé ekki niðrandi.

    5. > Eiginnafnið Kareem tekur eignarfallsendingu, Kareems, og er ekki þannig að það geti orðið nafnbera að ama. Nafninu er aftur á móti ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls meðal annars þar sem samstafan ee kemur ekki fyrir í sama atkvæði íslensku. Er því aðeins hægt að samþykkja ritháttinn að hefð sé fyrir honum.
      >
      > [..]
      >
      > [..] tökunafn og þessi ritháttur þess gjaldgengur víða um heim, m.a í Túnis þaðan sem umsækjandi kemur. Telur mannanafnanefnd því hefð fyrir rithætti nafnsins [..]

      bíddu, má þá ekki bara leggja íslensku mannanafnanefndina niður? einhverstaðar erlendis er hvaða stafastrengur sem er gjaldgengur sem nafn svo ..

      Held að „Kareem“ sé fyrsta samþykkta íslenska eiginnafnið sem hefur þetta „ee“ -> „í“ dæmi. Þetta þekkist svolítið í millinöfnum/ættarnöfnum eins og t.d. Bebensee, Creed, Geelan, Havsteen, McKee, Schreel .. en þetta er fyrsta eiginnafnið svo ég viti til.

    Leave A Reply