Share.

    6 Kommentare

    1. Hvolpasveitt on

      Þessi pæling virkar líka sem „hunangsgildra“ fyrir aðila sem ættu að vera rautt flagg við hliðin á nafninu sínu.

    2. Johnny_bubblegum on

      Get ekki beðið eftir að lenda í íslensku útgáfunni af Jesse Plemons af því hann var á lista Bryndísar. [*Hvers konar Íslendingur ertu?*](https://youtu.be/8dhC7EhFMm0?si=hpF5rs6C7SKIGQpa)

      Eðli þess að fá inn menntaða lækna og hjúkrunarfræðinga til að hjálpa í neyð er allt annað en að fá fólk sem sóttist eftir herþjálfun og þjónustu af eigin vali. Læknar og hjúkrunarfræðingar gera ekkert annað en að hjálpa fólki. Vígamenn eru þjálfaðir bókstaflega í hina áttina og það er heimska að gera ráð fyrir að þeir vilji bara gera vel í neyðarástandi.

    3. derpsterish on

      Skil ég rétt?

      Vill Sjálfstæðismaður fylgjast með og skrásetja hvað borgararnir gera í sínum frítíma?

      Hvað varð um frelsið til athafna, minna bákn og afskiptaminna ríkisvald.

    4. Wonderwhore on

      Ég verð að vera ósammála fyrri svörum hérna. Mér finnst ekkert að því að vilja hafa gagnagrunn yfir þá Íslendinga sem hafa fengið herþjálfun.

      Íslendingar verði aðeins að fara gera sér grein fyrir ástandinu í heiminum, og ástandið í heiminum gæti alveg heimsótt okkur fyrr eða síðar. Þá væri kannski betra að vera með eitthverskonar vara plan, í staðinn fyrir að vera bara með tittlingin í höndunum.

      Sérstaklega þegar plan númer eitt er að treysta á leppalúðann í Hvíta Húsinu.

    5. Einn1Tveir2 on

      Hahaha vera kallaður inn í sjálfsmorðsleiðangur að reyna verja landið frá innrás því maður fékk eithv þjálfun fyrir 20 árum. Jesus hvað þessir sjallar eru heimskir.

      Hvað næst? Gefa björgunarsveitinni hríðskotabyssur?

    6. Mér finnst öll umræða um drónahernað vera furðulega fyrirferðarlítil í þessum málefnum. Hættan að Íslandi stafar að mestu leyti frá sjó og er þá ekki málið að henda í einn góðan fljótandi drónaflota, eða jafnvel kafbátadróna?

      Slíkt myndi a.m.k. breyta útreikningnum hjá erlendu valdi sem hyggst hertaka landið ef þeir vita að þeir munu tapa dýrum skipum við innrásina. Svo eru slík tæki fjárhagslega þægileg í þokkabót.

    Leave A Reply