Share.

    1 Kommentar

    1. Mikið hefur verið rætt um hvaða tölur eru og eru ekki „réttar“ varðandi þetta blessaða veiðigjaldafrumvarp, en það er eitt í þessari grein frá meirihlutanum sem stóð upp úr fyrir mér, og ég skil ekki af hverju það fær ekki meiri athygli.

      >Þegar SFS talar um „mat Skattsins“ þá eru samtökin að vísa í tölur sem nefndar voru á fundi 5. júní síðastliðinn um að veiðigjaldið yrði 64 krónur á hvert þorskígildiskíló. Á þeim fundi kom skýrt fram að ekki væru komnar upplýsingar frá Fiskistofu til að fullklára útreikninga. Þetta væru vinnugögn. Þar kom líka skýrt fram að um innherjaupplýsingar væri að ræða sem trúnaður þyrfti að ríkja um.

      Ef þetta voru ókláruð vinnugögn (sem reyndust síðan ekki vera rétt) sem átti að ríkja trúnaður um og minnihlutinn var að tönnlast á að sýndi að skatturinn væri ósammála útreikningum atvinnuvegaráðuneytisins, hvernig fengu þau þessar tölur?

      Var einhver hjá skattinum að leka viljandi í minnihlutann, eða komust þau yfir tölurnar á einhvern annan máta? Og ætti þá ekki að vera forgangsmál hjá skattinum að vera með rannsókn til að komast að því hvernig þessar tölur láku?

    Leave A Reply