Share.

    4 Kommentare

    1. rockingthehouse on

      Sko, reglurnar eru allt of strangar eins og er að mínu mati. Ég bý í nýbyggingu og kosið var um gæludýrahald fyrir ekki svo löngu; 5 íbúðir mættu á fundinn, restin af íbúðunum annaðhvort mættu ekki eða eru óseldar svo söluaðilinn sat hjá í kosningunum. 4 íbúðir kusu að gæludýrahald yrði leyft, ein íbúð kaus gegn því. Kosningar voru felldar niður vegna þess að ekki var nógu mikið af íbúðareigendum sem kusu með gæludýrahaldi.

      Ef íbúðareigendur geta ekki dröslast til að mæta á fundinn þá finnst mér að þeirra atkvæði ætti ekki að vera tekið inn í samræðuna. Þessi fundur var með mánaðar fyrirvara. 4 sem mæta segja já á móti einum en það er ekki nóg? Svo heiladautt mál.

    2. Morvenn-Vahl on

      Mér finnst líka frekar mikilvægt að fólk þurfi ekki að lóga dýrum vegna þess að það þurfti að flytja úr einu húsnæði yfir í annað.

      Við erum eina landið sem það virðist sem 90% af þjóðinni sé með ofnæmi fyrir dýrum miðað við hvernig sumir haga sér. Fyrir utan að ég hef kynnst nokkrum einstaklingum með ofnæmi sem var skítsama þótt fólk væri með gæludýr svo lengi sem dýrið var ekki að þvælast inn á sameign. Þetta er oftar en ekki miklu minna vandamál en þessir ofnæmislæknar vilja meina og mig grunar eins og þeir miði alltaf út frá einhverju „worst case scenario“ en þá ættum við mögulega að banna allar hnetur og brenna alla grasvelli. Taka bara skrefið inn í einhvers konar „bubble boy“ veruleika.

      Þetta virðist almennt ekki vera vandamál á meginlandi á Evrópu en á Íslandi þá er þetta orðið „grafalvarlegt” mál. Svona fyrir utan að gæludýr mega nú þegar heimsækja íbúðir á daginn og ég veit um nágranna sem fá hund sonar síns daglega yfir daginn meðan sonurinn er í vinnu. Ekki valdið neinum usla og hundruðir íbúðareigenda hafa laumupúkast með inniketti í mörg ár án vesens. Þetta er svo bölvanlega lítið vandamál nú þegar og þessir ofnæmislæknar haga sér eins og kjarnakljúfurinn í Chernobyl sé að fara að springa.

    3. Þetta er hvergi vandamál annarsstaðar í heiminum, ofnæmi er svo uppsprengt 1st world problem hjá rauðnefjum.

      Ég er með kattaofnæmi, ég gæti ekki búið með ketti, en það má alveg vera köttur í öllum íbúðum í kringum mig.

    Leave A Reply