Share.

    1 Kommentar

    1. >Fyrir áramót varði tólf ára gamall drengur löngum stundum á bókasafni Breiðagerðisskóla vegna þess að honum var meinað að sitja tíma með samnemendum sínum. Ástæðan var sú að drengurinn skrifaði skólastjóranum bréf ásamt vini sínum þar sem þeir kvörtuðu undan óþægilegri framgöngu kennara.
      >
      >Í kjölfarið var báðum drengjunum vísað úr tímum hjá kennaranum. Um hálfum mánuði síðar baðst annar drengurinn afsökunar og fékk þá að koma aftur inn í tíma. Hinum var haldið utan kennslustunda hjá þessum kennara í rúma tvo mánuði, án þess að nokkur tilraun væri gerð til að sannreyna réttmæti ásakana barnanna. Eftir að hafa árangurslaust leitað lausna hjá skólastjórnendum, Norðurmiðstöð, skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar og Landsteyminu kærðu foreldrar drengsins að lokum til lögreglu, enda málið farið að hafa mikil áhrif á líðan og velferð barnsins.

      9118 orða grein um útskúfun sem tveir drengir sættu eftir að hafa kvartað undan ofbeldi kennara í skóla:

      https://preview.redd.it/cyh5j69uph5f1.png?width=875&format=png&auto=webp&s=7a3557547f7b7f8d6d1e89e75ac7c4c1923160d8

      >Skólastjórinn sendi fjölskyldu drengsins yfirlit yfir þá tíma sem hann mátti ekki sitja með samnemendum sínum vegna þess að þá var umræddur kennari að kenna. Bannaðir tímar eru rauðmerktir.

      Greinin er soft-paywalled, maður getur lesið greinina án þess að vera áskrifandi með því að skrá sig inn.

    Leave A Reply