Share.

    6 Kommentare

    1. Með svona sterkan leiðtoga sem berst fyrir málefnum sem brenna á hinum almenna borgara get ég ekki skilið hvernig fylgi Sjálfstæðisflokksins er í frjálsu falli. Vill almenningur ekki að Grey ríka fólkið sem lenti í þeim hræðilega atburði að sæta rannsókn eftir að hafa bara viljað ná arðsemiskröfunum sínum fái að upplifa réttlæti?

    2. Þetta lykt eins og tafartæknistaktík.

      Vilja sjallarnir rannsaka sjálfan sig?

    3. Tortryggja allar stofnanir, spilla trausti í samfélaginu, skauta fólki með ímynduðum vandamálum, hrósa sér fyrir að leysa þau ímynduðu vandamál – þessi óheiðarleiki í nafni fárra auðkífinga er jafn hættulegur okkar samfélagi og hann var Bandaríkjunum hér á árum áður og við ættum að forðast það að taka þátt í þessu til að við endum ekki á svipuðu róli og Bandaríkin finna sig í akkúrat núna.

      En því miður kemur þetta ekki á óvart því Sjálfstæðisflokkurinn hefur sótt samkundur Repúblikana frá því að ég man eftir mér – og sóttu líka sérstaka samkundur Teboðsins (Tea Party) þegar „post truth populism“ byrjaði að sýna sig hjá Repúblikönum hér fyrir c.a. áratug síðan.

      Í alvörunni, höfnum þessari tilraun til að flytja inn það sem bjó til lýðræðiskrísu Bandaríkjanna einlægt, harkalega og svo opiðskátt að það er ekki hægt að misskilja það.

    4. Equivalent_Day_4078 on

      Ég hefði haldið að griftið væri að þykjast vilja vinna fyrir landann í stjórnarandstöðu en síðan sýna á sér rétta andlit í ríkisstjórn. Af hverju í ósköpunum eru þau að gefa upp leikinn og sýna á sér beran bossann núna sem verndarar spillingapésana?

    5. Melodic-Network4374 on

      Alveg burtséð frá rannsóknarefninu þá finnst mér við þurfa að passa okkur á þessari tilhneigingu til að skipa rannsóknarnefndir um allan fjandann. Þessar nefndir leiða ekki til neinna sakfellinga eða afleiðinga, enda ekki hluti af réttarkerfinu. Það eina sem þær gera er að skila af sér skýrslum sem í besta falli enda á örfáum fréttum í nokkra daga og svo beint ofan í skúffu.

      Það er mjög auðvelt fyrir þingmenn að kalla eftir svona nefnd en kostnaðurinn er gríðarlegur. Langmestur kostnaður er launakostnaður, enda yfirleitt lögfræðingar sem vinna við þetta og það tekur mikinn tíma að kalla eftir gögnum og fara yfir þau.

      Þetta er aðeins að færast í aukana hér en Bretar eru mun lengra komnir í þessu en við. Á milli 1990-2024 var kostnaður þeirra við svona nefndir 1,5 milljarðar punda (~257 milljarðar króna) [1]. Þessi kostnaður hefur sprungið út á undanförnum árum því það eru sífellt fleiri svona nefndir skipaðar, þetta er góð leið fyrir þingið til að ýta frá sér ábyrgð á gömlum málum og láta líta út fyrir að eitthvað hafi verið gert.

      Það er pínlegt að horfa upp á formann flokks sem talar mikið um að vilja aðhald í ríkisfjármálum kalla eftir enn einni svona nefnd. En þetta rannsóknarnefndarblæti er samt vandamál sem fyrirfinnst hjá þingmönnum allra flokka.

      [1] https://www.instituteforgovernment.org.uk/explainer/public-inquiries

    Leave A Reply