
Tourismusunternehmen, die für die Drohung eines Mitarbeiters zu drohten, der sich für eine Gewerkschaft zurückzieht – rúv.is
https://www.ruv.is/frettir/innlent/2025-05-05-ferdathjonustufyrirtaeki-sektad-fyrir-ad-hota-starfsmanni-uppsogn-fyrir-ad-ganga-i-stettarfelag-442923
Von birkir
2 Kommentare
>Maðurinn sem um ræðir heitir Bernat Pujol Alemany og hafði hann starfað hjá ferðaþjónustufyrirtækinu um hríð þegar hann ætlaði að ganga í Verkalýðsfélag Suðurlands. Bernat er rúmlega þrítugur Spánverji. Eigandi hótelsins sem um ræðir, Ingólfur Ragnar Axelsson, lét Bernat vita af því í spjalli á samfélagsmiðlinum Slack að hann myndi missa vinnuna ef hann gerði þetta.
–
>Í dómsorðum félagsdóms segir orðrétt um niðurstöðuna í málinu: „Viðurkennt er að eftirfarandi ummæli Ingólfs Ragnars Axelssonar, stjórnarmanns og eiganda stefnda, Hvalvörðugilslækjar ehf., 19. janúar 2024 á samskiptaforritinu Slack hafi falið í sér hótanir um uppsögn á ráðningarsamningi við A og brot gegn a-lið 4. gr. laga nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur.“
>
>Meðal þess sem Ingólfur sagði við Bernat var:
>>„Ef þú vilt ganga í stéttarfélagið sem þú varst í verður þér sagt upp, bara svo það sé alveg skýrt.“
>
>Guðrún Elín Pálsdóttir sagði við fréttastofu í september að verið væri að ráðskast með erlent starfsfólk hér á landi. „Það er verið að ráðskast með fólk og verið að stjórna því. Verið að ákveða fyrir það hvað það á að gera og svo framvegis. Það er ekki þannig sem þetta á að virka. “
Þetta fyrirtæki, Tröll, hefur áður komist í pressuna fyrir óheppileg skilaboð á vefspjalli – heimspressuna jafnvel: https://www.independent.co.uk/travel/news-and-advice/trollaferdir-iceland-tour-company-bans-uk-holidaymakers-brexit-eu-members-only-tough-luck-a7748961.html
Hversu oft þarf fólk að fá að komast upp með svona lagað áður en það er svipt rekstrarleyfi til frambúðar? Þetta er svona um allan ferðaþjónustuiðnaðinn og í veitinga og þjónustugeiranum og dregur smám saman úr réttindum okkar allra þegar það fær að viðgangast hömlulaust um árabil.