ESBVaktin.is – Website und System, das Stellungnahmen aus der Debatte um das EU-Referendum sammelt, sie mit Daten vergleicht und die Ergebnisse veröffentlicht (veröffentlichte Inhalte werden vor der Veröffentlichung von einem Menschen überprüft)

https://esbvaktin.is/

Von birkir

2 Kommentare

  1. ég er skeptískur á þessa nálgun en mig langaði til þess að fá álit fleiri á hvort og þá hvernig þessi aðferðarfræði getur hjálpað umræðunni eða afvegaleitt hana

    >ESB Vaktin er sjálfvirkt greiningarkerfi sem fylgist stöðugt með opinberri umræðu um þjóðaratkvæðagreiðsluna um Evrópusambandið. Kerfið skannar fréttamiðla og aðrar heimildir, dregur út fullyrðingar, metur þær á móti staðreyndagrunni og birtir niðurstöður á þessari vefsíðu.
    >
    >Verkefnið er byggt á spjallmenninu Claude frá Anthropic. Claude skrifar allan texta á síðunni — greiningar, samantektir og vikuyfirlit. Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson, tölfræðingur, hannar aðferðafræðina, sér um staðreyndagrunn og fer yfir niðurstöður sem ritstjóri.

    >Allar forsendur og heimildir eru birtar með hverri greiningu. Hægt er að rekja hverja niðurstöðu til ákveðinna heimilda í staðreyndagrunni. Aðferðafræðin er opin til skoðunar og gagnrýni. Allur grunnkóði verkefnisins er opinn:
    >
    >* [Greiningarkerfið](https://github.com/bgautijonsson/esbvaktin) — gagnavinnsla, fréttasöfnun, fullyrðingagreining og staðreyndagrunnur
    >* [Vefsíðan](https://github.com/bgautijonsson/esbvaktin-site) — framendi og birtingarlag

    Af: https://esbvaktin.is/adferdarfraedi/

  2. Þetta er gagnlegt. Það er mjög mikil vinna fyrir venjulegt fólk að komast að því hvað er rétt í þessari umræðu og þetta hjálpar þar.

    Hins vegar er framsetningin ekki alltaf fullkomin. t.d. má sjá undir „Athyglisverðar fullyrðingar vikunnar“ að það er eins og það sé villandi fullyrðing að húsnæðisverð muni ekki lækka þó vextir lækki, en svo þegar það er skoðað nánar þá er það staðfest.

    Svo er skrýtið að það virðist nánast engar tölfræðiupplýsingar um ESB aðgengilegar þessu tóli.

Leave A Reply