Die katholische Kirche in Island fördert die Unterdrückung von Homosexualität – RÚV.is

https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-03-03-katholska-kirkjan-a-islandi-hvetur-til-baelingar-a-samkynhneigd-468499

Von birkir

11 Kommentare

  1. rockingthehouse on

    >„Og „conversion” – sinnaskipti – þetta er lykilorð í daglegu lífi hjá kaþólsku fólki. Við erum í þeirri stöðu, stöðugt, að snúa okkur frá hinu illa til þess góða.”

    Kúl, kúl, kúl, kúl, kúl. Ekkert athugavert hér að sjá.

    >Bann við þvinguðum bælingarmeðferðum, og bælingarmeðferðum á börnum, var fest í lög á Íslandi árið 2023.

    Opinber afstaða kaþólsku kirkjunnar er sú að hún stundi ekki eiginlega bælingameðferð þar sem meðferð þeirra sé ekki læknisfræðileg heldur siðferðisleg og andleg leiðsögn.

    Sko það þarf að grípa inn í þetta helst í gær. Þetta er þeirra játning á því að það er verið að stunda bælingameðferðir innan kirkjunnar, sama hvað þeir kalla það, þetta er bælingameðferð. Það eru hinsegin börn kaþólska foreldra sem munu þjást verst af svona hugmyndafræði. Ég sé alveg fyrir mér að þvinguð bælingameðferð á börnum hafi verið í gangi undanfarin ár þrátt fyrir þetta bann. Og guð veit hvað annað m.v. sögu kaþólsku kirkjunnar.

  2. á maður ekki bara að hvetja til bælingar á kaþólsku kirkjunni í senn? finnst það sanngjarnt

  3. Stutturdreki on

    Alltaf hafa þeir meiri áhuga á að bæla niður samkynhneigð heldur en barnagirnd og enginn hefur ásakað þá um að vera samkynhneigða.

  4. Morvenn-Vahl on

    Það er nú skilgreining á geðveiki að reyna það sama aftur og aftur án árangurs. Núna hefur kirkjan gerst sek um bælingar aðferðir áratugum, ef ekki öldum, saman og árangurinn hefur bara verið óhamingja, reiði og sjálfsvíg meðal þeirra sem kirkjan kúgar.

    Svo á meðan þetta er gert í nafni guðs og heilags anda þá er sama kirkjan sek um að brjóta á óteljandi magni af börnum.

    Sorry með mig, en ég hef 0 áhuga á að sýna þessari kirkju skilning.

    Fyrir utan að tilvitnarnir í Biblíunni um samkynhneigð(og trans ef út í það er farið) eru svo óttarlega þunnar.

  5. Only-Risk6088 on

    Heldur hann að það séu allir með langanir til að sofa hjá sínu kyni? Hvernig dettur fólki í hug að þessi meðferð virki?

  6. Kaþólska kirkjan viðurkennir brot á almennum hegningarlögum í fjölmiðlum

Leave A Reply