Doppelt so viele Krankheitstage auf dem öffentlichen Arbeitsmarkt – RÚV.is

https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-02-19-tvofalt-fleiri-veikindadagar-a-opinberum-vinnumarkadi-467388

Von MTGTraner

5 Kommentare

  1. Getur verið að fólk sé einfaldlega ekki að taka veikindaleyfi eins og það ætti að gera í einkageiranum, m.a. vegna ótta um starfsöryggi? Maður hefur oftar en einu sinni séð kollega hósta úr sér lungun á vinnustað þegar það ætti að jafna sig heima.

  2. Mikilvæg áminning: [Viðskiptaráð Íslands](https://vi.is/adild) er einkafélag, en ekki opinbert ráð eins og nafnið gæfi til kynna. Það rukkar aðgangsgjöld af einkafyrirtækjum í skiptum við hagsmunagæslu fyrir þeirra hönd. Almenningur ætti ekki að líta á tilkynningar frá Viðskiptaráði Íslands sem neitt annað en stæka hagsmunagæslu á móti almanna-hagsmunum.

    Svo stangast seinasta málsgrein í þessari frétt bara fullkomnlega á við allt sem mér var sagt þegar ég var að gera upp við mig hvað ég ætlaði að gera í framtíðinni. Tímarnir breytast og allt þannig, en mér sýnist þetta bara vera tilraun til að segja að þeir hafi breyst þegar þeir breyttust ekki sem sést á því að almennir opinberir starfsmenn hafa enn eilítið meiri fríðindi, og lífeyrisréttindi, en starfsfólk á hinum almenna markaði og ætli það sé ekki að fara pínulítið í taugarnar á borgandi meðlimum Viðskiptaráðsins að þurfa að keppa við það.

    Henntugur [listi](https://vi.is/felagatal) yfir félaga ráðsins.

  3. >Viðskiptaráð Íslands telur ekki vera málefnaleg rök fyrir að veikindaréttur sé ríkari hjá hinu opinbera. Það samræmist illa grundvallarsjónarmiði um jafnræði og valdi skekkju í opinberri umræðu þar sem ekki sé tekið tillit til þess munar við samanburð á launakjörum.

    >Ráðið leggur því til að veikindaréttur opinberra starfsmanna verði færður til jafns við einkageirann.

    Guð minn almáttugur hvað þetta Viðskiparáð má fokka sér alla leið úr sólkerfinu. Einn hópurinn hefur það betra svo við skulum geta það jafnslæmt fyrir alla.

  4. Ég held að það vanti alfarið að skoða þetta í réttu samhengi. Opinberir starfsmenn eru líklegri til að vera heima þegar þeir eru veikir því þeir þeir eru með ákveðna uppsagnavernd. Á einkamarkaði er fólk líklegra til að pína sig í vinnuna þegar það er veikt sem er ekkert sérstaklega jákvætt fyrir vinnustaðinn þegar smitið fer að ganga. Það er eitt.

    Opinberir starfsmenn eru t.d. heilbrigðisstarfsmenn, kennarar, leikskólaliðar, leikskólakennarar, starfsmenn í búsetukjörnum og annarri framlínu þar sem flestar umgangspestir virðast ná fólki. Flestir foreldrar þekkja þetta þegar börnin byrja í leikskóla og eru svo meira eða minna að fá eina pest í mánuði eða svo. Þetta eru líka störf þar sem álag er mikið, stéttir sem eru hvað líklegasta til að enda í kulnun og annað.

    Fínt að skoða þetta og sjá hvort það sé verið að misfara með þessi ríku réttindi en ég held að gagnlegast væri þá að sundurliða þessi gögn betur og skoða hvernig þetta er hjá stökum sviðum eða framlínustarfsmönnum vs. skrifstofufólki. Það gæfi betri mynd sem og að bera þá saman við sambærileg störf hjá einkaframtakinu. Annars er í raun verið að bera saman epli og appelsínur, eða í það minnsta sítrónur og lime.

  5. Enn heldur þessi áróðursherferð áfram. Athugið að tilgangurinn hér er ekki að fækka veikindadögum hjá hinu opinbera heldur að réttlæta hvernig einkageirinn leyfir sér að fara með starfsfólk eins og einnota vörur.

    Viðskiptaráði er skítsama um veikindadaga opinbera starfsmanna og kostnað hjá hinu opinbera. Allt sem beinist að hinu opinbera hjá þeim snýst um að:
    a) lækka gjöld á einkageirann
    b) fjarlægja eða minnka samanburð milli kjara og réttinda starfsmanna hjá hinu opinbera og einkageiranum (til að lækka kostnað í einkageiranum)
    c) minnka eftirlit með einkageiranum

Leave A Reply